fbpx
Mánudagur 08.júní 2026
Pressan

Risahögg fyrir mafíuna: Eignir fyrir 200 milljónir evra gerðar upptækar

Pressan
Föstudaginn 29. maí 2026 19:30

Matteo Messina Denaro.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ítölsk yfirvöld hafa lagt hald á eignir að verðmæti meira en 200 milljónir evra sem tengjast mafíuforingjanum Matteo Messina Denaro.

Matteo þessi var um árabil foringi hinnar alræmdu Cosa Nostra-mafíu á Sikiley og var um tíma í hópi þeirra manna sem ítalska lögreglan lagði hvað mesta áherslu á að handsama. Það gekk þó ekki hratt fyrir sig en hann var handtekinn í janúar 2023 og lést hann af völdum krabbameins síðar það ár.

Saksóknarar á Ítalíu segja að aðgerðin sé þungt högg fyrir tilraunir sikileysku mafíunnar til að endurreisa fjárhagslegan styrk sinn.

Meðal þeirra eigna sem gerðar voru upptækar eru meira en 12 kíló af gullstöngum, milljónir evra í reiðufé, dýr lúxusúr og um tuttugu verðmætar fasteignir.

Aðgerðirnar eru hluti af umfangsmikilli rannsókn á fjárstreymi sem talið er tengjast fíkniefnaviðskiptum mafíunnar. Þrír einstaklingar voru handteknir í tengslum við málið.

Yfir 150 starfsmenn ítölsku efnahagsbrotalögreglunnar tóku þátt í húsleitum bæði innan Ítalíu og erlendis. Aðgerðir fóru meðal annars fram í Andorra, Gíbraltar, Cayman-eyjum, Sviss, Líbanon, Mónakó og á Spáni.

Með handtöku Denaro á sínum tíma var endir bundinn á þriggja áratuga flótta hans undan yfirvöldum. Hann hafði áður verið dæmdur í fjarveru fyrir fjölda morða og var meðal annars talinn hafa átt þátt í skipulagningu tveggja sprengjuárása árið 1992 þar sem tveir fremstu saksóknarar Ítalíu í baráttunni gegn mafíustarfsemi í landinu létust.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 18 klukkutímum

Barnamúmían dularfulla – Fundu dánarorsökina

Barnamúmían dularfulla – Fundu dánarorsökina
Pressan
Fyrir 19 klukkutímum

Aukin glæpatíðni á Tenerife

Aukin glæpatíðni á Tenerife
Pressan
Í gær

4 ára drengs saknað – Ári síðar fannst taska grafin

4 ára drengs saknað – Ári síðar fannst taska grafin
Pressan
Í gær

Gríðarlegt mannfall – „Mjög erfið staða fyrir Pútín“

Gríðarlegt mannfall – „Mjög erfið staða fyrir Pútín“
Pressan
Í gær

Finnst þér gaman að lesa? – Þá eru vísindin með góðar fréttir fyrir þig

Finnst þér gaman að lesa? – Þá eru vísindin með góðar fréttir fyrir þig
Pressan
Í gær

Svona getur B12-vítamínskortur komið fram í munninum

Svona getur B12-vítamínskortur komið fram í munninum
Pressan
Fyrir 2 dögum

Geimfarar yfirgáfu Alþjóðlegu geimstöðina vegna súrefnisleka

Geimfarar yfirgáfu Alþjóðlegu geimstöðina vegna súrefnisleka
Pressan
Fyrir 2 dögum

Mikið reiði í Frakklandi eftir morð 11 ára stúlku – Sá grunaði ekki kallaður til skýrslutöku mánuðum saman

Mikið reiði í Frakklandi eftir morð 11 ára stúlku – Sá grunaði ekki kallaður til skýrslutöku mánuðum saman