
Þetta kom fram við réttarrannsókn sem hófst í Brighton í vikunni og breskir fjölmiðlar fjalla um.
Systurnar Jane Adetoro, 36 ára, Christina Walters, 32 ára, og Rebecca Walters, 31 árs, voru búsettar í Uxbridge í vesturhluta Lundúna. Þær létust 13. maí eftir að hafa lent í vandræðum í sjónum á ströndinni.
Við rannsóknina kom fram að Rebecca Walters hefði fundist í fjöruborðinu og sjúkraflutningamaður staðfest andlát hennar á vettvangi. Lík systranna Jane og Christinu fundust skömmu síðar í sjónum.
Þrátt fyrir ítarlegar rannsóknir hefur enn ekki tekist að ákvarða nákvæma dánarorsök. Victoria Foreman, fulltrúi réttarrannsóknarinnar, sagði að frekari læknisfræðilegar rannsóknir stæðu yfir. Hún tók þó fram að lögreglan væri sannfærð um að enginn annar hefði átt þátt í dauða systranna.
Mikil umræða og misgáfulegar fullyrðingar hefur birst á netinu um málið, að því er segir í frétt Daily Mail. Sumir hafa haldið því ranglega fram að systurnar hafi verið innflytjendur sem hafi verið varpað fyrir borð af smyglurum, á meðan aðrir hafa sett fram kenningar um sameiginlegt sjálfsvíg. Lögregla segir ekkert styðja slíkar fullyrðingar.
Málið hefur vakið enn meiri athygli vegna þess að móðir systranna, Janice Walters, drukknaði fyrir sextán árum. Fjölskyldan segist ekki hafa vitað að systurnar hefðu ferðast til Brighton þennan morgun, en hefur nefnt þann möguleika að þær hafi ætlað að minnast móður sinnar.
Ein kenning strandgæslunnar er að ein eða fleiri systranna hafi gengið út í sjóinn en misst fótfestuna þar sem botninn dýpkar snögglega skammt undan ströndinni. Laus möl og öldugangur gætu hafa gert systrunum erfitt fyrir. Réttarrannsókninni hefur verið frestað til 8. október þegar frekari niðurstöður rannsókna liggja fyrir.