fbpx
Mánudagur 08.júní 2026
Pressan

Lögregla sektaði konu fyrir að nota síma undir stýri – Það var bara eitt vandamál

Pressan
Föstudaginn 29. maí 2026 06:30

Katie getur ómögulega haldið á síma í hægri höndinni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bandarískur áhrifavaldur og íþróttakona hefur vakið talsverða athygli á samfélagsmiðlum eftir að hún var sektuð af lögreglu fyrir að halda á síma í hægri höndinni við akstur. Á þessu er bara einn galli því konan, Katie McCrary, er ekki með hægri hönd.

McCrary, sem er þekkt á samfélagsmiðlum undir nafninu Slightlyoff.balance, greindi frá málinu á TikTok og Instagram þar sem hún deildi upptökum úr búkmyndavél lögreglu.

McCrary var sektuð vegna málsins þann 11. febrúar síðastliðinn í Palm Beach-sýslu í Flórída. Eins og myndbandið hér að neðan ber með sér taldi lögreglumaður að McCrary hefði haldið á farsíma í hægri hendi meðan hún ók eftir North Dixie-þjóðveginum.

Hún fékk sekt samkvæmt lögum í Flórída um notkun síma undir stýri við akstur og nam sektin 116 dölum, rúmum 14 þúsund krónum.

McCrary, sem hefur frá fæðingu verið án hægri handar og hefur lengi fjallað opinskátt um líf sitt og reynslu á samfélagsmiðlum, birti síðar myndband þar sem hún lýsti furðu sinni á atvikinu. Myndbandið vakti mikla athygli og hvöttu ófáir netverjar hvöttu hana til að fara alla leið með málið til að fá sektina fellda niður.

Í upptökum úr búkmyndavél lögreglumannsins má heyra hann útskýra að hún hafi verið stöðvuð fyrir að halda á síma í hægri hendi. McCrary lyftir þá hægri handleggnum upp og svarar: „Augljóslega ekki,“ áður en hún hlær og spyr hvort ekki sé best að láta málið þar við sitja.

Lögreglumaðurinn stóð þó fast á sínu og ítrekaði að hann hefði séð hana með símann í hendinni. McCrary reyndi að malda í móinn en hafði ekki erindi sem erfiði.

McCrary mætti fyrir dóm í lok apríl og neitaði sök. Til stóð að þinghald færi fram aftur 27. maí, en samkvæmt bandaríska miðlinum CBS 12 óskaði lögreglumaðurinn sjálfur eftir því að málið yrði fellt niður áður en til þess kom.

Í færslu á Instagram staðfesti McCrary að sektin hefði verið felld niður vegna skorts á sönnunargögnum. Málið hefur vakið talsverða athygli vestanhafs og margir gagnrýnt þrjósku lögreglu í tengslum við málið.

@slightlyoff.balance Merry Christmas! Tas the night before court…. #bodycam #palmbeach #court #florida ♬ original sound – slightlyoff.balance

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 17 klukkutímum

Barnamúmían dularfulla – Fundu dánarorsökina

Barnamúmían dularfulla – Fundu dánarorsökina
Pressan
Fyrir 18 klukkutímum

Aukin glæpatíðni á Tenerife

Aukin glæpatíðni á Tenerife
Pressan
Í gær

4 ára drengs saknað – Ári síðar fannst taska grafin

4 ára drengs saknað – Ári síðar fannst taska grafin
Pressan
Í gær

Gríðarlegt mannfall – „Mjög erfið staða fyrir Pútín“

Gríðarlegt mannfall – „Mjög erfið staða fyrir Pútín“
Pressan
Í gær

Finnst þér gaman að lesa? – Þá eru vísindin með góðar fréttir fyrir þig

Finnst þér gaman að lesa? – Þá eru vísindin með góðar fréttir fyrir þig
Pressan
Í gær

Svona getur B12-vítamínskortur komið fram í munninum

Svona getur B12-vítamínskortur komið fram í munninum
Pressan
Fyrir 2 dögum

Geimfarar yfirgáfu Alþjóðlegu geimstöðina vegna súrefnisleka

Geimfarar yfirgáfu Alþjóðlegu geimstöðina vegna súrefnisleka
Pressan
Fyrir 2 dögum

Mikið reiði í Frakklandi eftir morð 11 ára stúlku – Sá grunaði ekki kallaður til skýrslutöku mánuðum saman

Mikið reiði í Frakklandi eftir morð 11 ára stúlku – Sá grunaði ekki kallaður til skýrslutöku mánuðum saman