fbpx
Föstudagur 12.júní 2026
Pressan

Þetta grænmeti á aldrei að borða hrátt

Pressan
Laugardaginn 16. maí 2026 11:30

Ekki borða þær hráar.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Allir vita að grænmeti er hollt og að það er nauðsynlegt að borða það. Margt af því, til dæmis brokkolí, paprika og gulrætur er hægt að borða hrátt og það er bráðhollt. En sumt grænmeti á alls ekki að borða hrátt því það getur gert þig veika(n).

Kartöflur á aldrei að borða hráar því þær geta verið hættulegar því þær innihalda sólanín sem getur verið lífshættulegt í miklu magni að sögn SciTechDaily. En það þarf nú að borða ansi mikið magn af hráum kartöflum til að það verði hættulegt. Þess utan er mjög líklegt að þér verði óglatt ef þú borðar þær hráar, svo það er bara að sjóða þær eða steikja.

Nýrnabaunir innihalda efni sem heitir fýtóhemagglútínín en það getur valdið alvarlegri ógleði og uppköstum, meira að segja ef það er í litlu magni. Þetta eiturefni er um 1% af ómeðhöndluðum baunum og það þarf ekki að borða nema fjórar til fimm baunir til að vandamál komi upp. Sem betur fer, hverfur eitrið úr baununum þegar þær eru soðnar. En það er góð regla að hella vatninu eftir suðuna til að tryggja að ekkert fari ofan í þig sem ætti ekki að fara ofan í þig.

Sveppir eru strangt til tekið ekki grænmeti en þeir eru samt matur sem þú átt alltaf að elda áður en þeirra er neytt. Flestar þær sveppategundir, sem er hægt að kaup í verslunum, valda vægum einkennum ef þær eru borðaðar hráar. Þess utan dregur matreiðslan bragðið og megnið af næringarefnunum í þeim fram. Villtir sveppir eru allt annað mál, ef þú ert ekki 100% viss um hvað þú ert með í höndunum, þá ættirðu ekki að borða þá hráa eða eldaða. Það er ekki áhættunnar virði.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Móðir saklaus sökuð um þjófnað í Sports Direct – „Já, af því að þú ert þjófur!“

Móðir saklaus sökuð um þjófnað í Sports Direct – „Já, af því að þú ert þjófur!“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Fjölskyldufríið byrjaði með martröð: Ölvaðir farþegar, hvorki vott né þurrt og klukkustunda töf vegna neyðarástands – „Stressandi og ógnvekjandi“

Fjölskyldufríið byrjaði með martröð: Ölvaðir farþegar, hvorki vott né þurrt og klukkustunda töf vegna neyðarástands – „Stressandi og ógnvekjandi“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Nýjar upplýsingar í óhugnanlegu máli

Nýjar upplýsingar í óhugnanlegu máli
Pressan
Fyrir 2 dögum

Bandaríkin svara fyrir sig og gera árás á Íran

Bandaríkin svara fyrir sig og gera árás á Íran
Pressan
Fyrir 3 dögum

Hatur í garð ferðamanna á Tenerife – „Kill Tourists“

Hatur í garð ferðamanna á Tenerife – „Kill Tourists“
Pressan
Fyrir 3 dögum

Flugfreyja varar alla sem nota sætisborðin við

Flugfreyja varar alla sem nota sætisborðin við
Pressan
Fyrir 3 dögum

Svíar hyggjast fangelsa börn frá 13 ára aldri vegna gengjaofbeldis

Svíar hyggjast fangelsa börn frá 13 ára aldri vegna gengjaofbeldis
Pressan
Fyrir 4 dögum

Afhjúpa sterk viðbrögð Obama við Brexit: „Þið hafið f**** ykkur“

Afhjúpa sterk viðbrögð Obama við Brexit: „Þið hafið f**** ykkur“