
Kaffikorgur inniheldur köfnunarefni, kalíum og fosfór sem styrkja grasið og gera það betur í stakk til að glíma við mosa.
Hvað varðar notkun kaffikorgsins þá þarf að byrja á að dreifa honum á eldhúspappír til að láta hann þorna vel. Síðan er honum dreift jafnt yfir grasið, um 50 grömm á hvern fermetra.
Síðan þarf að vökva grasið vel næstu mánuði, tvisvar til þrisvar í viku.
Ef kaffikorgurinn er ekki orðinn nógu þurr þegar þú dreifir honum á grasið, þá getur hann valdið því að myglusveppur nái að skjóta rótum en hann skemmir grasið. Þess vegna er mjög mikilvægt að tryggja að kaffikorgurinn sé alveg þurr áður en hann er notaður sem áburður.
Hann er líka ódýr og umhverfisvænn áburður.