
Þetta segja vestrænar leyniþjónustustofnanir. Omni skýrir frá þessu og segir að boðskapurinn sé skýr: Allir, sem styðja Úkraínu eða gagnrýna rússnesk stjórnvöld, eru nú taldi óvinir og þá á að gera óvirka.
Það eru ekki bara Rússar á heimavelli sem eru í kastljósi Pútíns og handlangara hans því þeir beina sjónum sínum einnig að landflótta Rússum og aðgerðasinnum í allri Evrópu.
Og þessir andstæðingar Pútíns eru ekki teknir neinum vettlingatökum. Rússneski mannréttindafrömuðurinn Vladimir Osetjkin slapp til dæmis með skrekkinn 2024 þegar frönskum yfirvöldum tókst á síðustu stundu að koma í veg fyrir morðtilræði við hann. Svipuð atvik hafa komið upp í Þýskalandi, Póllandi og Litáen.
Mynstrið er ekki tilviljanakennt að sögn leyniþjónustustofnana sem segja að um samhæfðar aðgerðir sé að ræða sem njóti stuðnings stjórnmálamanna í efstu lögum rússneska stjórnkerfisins.
Hræðslan meðal andstæðinga Pútíns í Evrópu fer vaxandi en algjör þögn ríkir í Moskvu. Talsmaður Pútíns hefur ekki viljað tjá sig um málið.