
Konan, Monica Elfriede Witt, var ákærð árið 2019 fyrir að hafa afhent írönskum stjórnvöldum trúnaðarupplýsingar sem tengdust þjóðaröryggi Bandaríkjanna. Hún er enn á flótta, samkvæmt upplýsingum frá AP-fréttastofunni, og talin halda sig í Íran.
Í tilkynningu frá FBI segir að Witt hafi fyrir meira en áratug „svikið eið sinn við bandarísku stjórnarskrána“ með því að ganga til liðs við írönsk stjórnvöld og afhenda þeim viðkvæmar upplýsingar um varnarmál Bandaríkjanna.
„FBI hefur ekki gleymt þessu máli og telur að einhver búi yfir upplýsingum um hvar hún er niðurkomin,“ sagði Daniel Wierzbicki, yfirmaður gagnnjósna- og netöryggissviðs FBI í Washington, að því er fram kemur í frétt AP.
Ekki hefur verið skýrt hvers vegna FBI ákvað að vekja málið sérstaklega til umræðu nú, en ákvörðunin kemur á sama tíma og mikil spenna ríkir í samskiptum Bandaríkjanna og Írans.
Witt starfaði hjá bandaríska flughernum á árunum 1997 til 2008. Þar hlaut hún þjálfun í persnesku og tók þátt í leynilegum gagnnjósnaaðgerðum í Miðausturlöndum. Eftir herþjónustuna vann hún sem verktaki fyrir bandaríska varnarmálaráðuneytið.
Samkvæmt bandaríska dómsmálaráðuneytinu ferðaðist Witt til Írans árið 2013 eftir að hafa verið boðið á tvær ráðstefnur þar í landi þar sem allur kostnaður var greiddur. Yfirvöld segja ráðstefnurnar hafa verið hluta af áróðursstarfsemi gegn Vesturlöndum.
Saksóknarar segja Witt hafa verið varaða við af FBI áður en hún fór til Írans. Hún hafi þó fullvissað rannsakendur um að hún myndi ekki afhenda viðkvæmar upplýsingar.
Í ákærunni kemur fram að Witt hafi með háttsemi sinni stofnað þjóðaröryggi Bandaríkjanna og leynilegum varnaráætlunum í hættu. Þá er hún einnig sögð hafa veitt írönskum stjórnvöldum upplýsingar sem gætu hafa stefnt bandarískum starfsmönnum erlendis og fjölskyldum þeirra í hættu.
Bandarísk yfirvöld telja jafnframt að hún hafi aðstoðað írönsk stjórnvöld við að safna upplýsingum um fyrrverandi samstarfsmenn sína innan bandaríska stjórnkerfisins.