
Þetta er talinn vera næst þyngsti rúbíninn sem fundist hefur í þessu stríðshrjáða landi.
Sky News segir að hann hafi fundist nærri bænum Mogok í Mandalay-héraðinu en það er stærsta námusvæði landsins.
Stærsti rúbíninn, sem fundist hefur í landinu, fannst 1996. Hann var 21.450 karöt og vóg 4,29 kíló. Sá nýfundni er þó verðmætari vegna glæsilegs litar hans og gæða.
Um 90% af rúbínum heimsins koma frá Mjanmar og er vinnsla þeirra og annarra verðmætra steintegunda mikilvæg tekjulind fyrir landið.