
Merkur skýrir frá þessu og segir að almennt sé fólki ráðlagt að skúra gólf einu sinni í viku en það þurfi auðvitað að taka með í reikninginn hversu margir búa á heimilinum og hvaða gólfefni eru.
Flísar elska vatn en parket er ekki mjög hrifið af vatni. Flísar og lagskipt gólfefni þola vel að vera skúruð vikulega, svo lengi sem maður notar raka tusku og ekki of mikið vatn.
En hvað varðar parket og trégólf, þá er sagan önnur. Þessi náttúrulegu efni þola ekki of mikið vatn og því ætti bara að þrífa þau með þess til gerðum efnum öðru hvoru.
Það er auðvitað líka hægt að reyna að minnka þörfina á gólfþrifum, til dæmis með því að fara ekki inn á skónum. Svo er auðvitað hægt að sópa gólfið til að draga úr vatnsnotkun á það.