fbpx
Þriðjudagur 21.apríl 2026
Pressan

Rússnesk yfirvöld vilja gera stolna bíla frá Evrópu löglega

Pressan
Sunnudaginn 5. apríl 2026 11:30

Frá Moskvu.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Rússnesk stjórnvöld íhuga núna lagabreytingu sem getur haft víðtæk áhrif á evrópska bíleigendur. Í lagafrumvarpi, sem innanríkisráðuneytið vinnur að, er lagt til að bílar, sem eru skráðir stolnir í alþjóðlegum gagnabanka, geti framvegis fengið skráningu í Rússlandi ef rússneskir ríkisborgarar eru með þá.

Þýski miðillinn Merkur skýrir frá þessu og byggir á umfjöllun Moscow Times.

Þessi hugmynd Rússa vekur áhyggjur því þetta mun gera misindismönnum auðveldara fyrir að selja bíla frá ESB í Rússlandi.

Ástæðan fyrir tillögunni tengist sterklega pólitískri spennu á milli Rússlands og Vesturlanda vegna innrásar Rússa í Úkraínu.

Rússnesk yfirvöld segja að samstarfið við Vesturlönd vegna stolinna bíla sé lítið sem ekkert. Segja Rússar að fyrirspurnum, um fjölda bíla sem fundust í Rússlandi og séu á alþjóðlegum listum yfir stolna bíla, hafi ekki verið svarað af Vesturlöndum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Tveir lögreglumenn dæmdir til dauða fyrir dráp á mótmælanda

Tveir lögreglumenn dæmdir til dauða fyrir dráp á mótmælanda
Pressan
Í gær

Vísindamenn segja niðurstöður nýrrar rannsóknar um gagnaver mikið áhyggjuefni

Vísindamenn segja niðurstöður nýrrar rannsóknar um gagnaver mikið áhyggjuefni
Pressan
Fyrir 2 dögum

Notar þú símann þegar þú ert að elda? – Þá skaltu hugsa þig vel um

Notar þú símann þegar þú ert að elda? – Þá skaltu hugsa þig vel um
Pressan
Fyrir 2 dögum

Ertu komin(n) yfir fimmtugt? – 4 auðveldar æfingar sem geta hjálpað þér að minnka magafituna

Ertu komin(n) yfir fimmtugt? – 4 auðveldar æfingar sem geta hjálpað þér að minnka magafituna