fbpx
Þriðjudagur 21.apríl 2026
Pressan

Þú ættir að hugsa þig um áður en þú leggur símann frá þér og lætur skjáinn vísa niður

Pressan
Laugardaginn 4. apríl 2026 17:30

Þau ættu nú kannski að leggja símana frá sér.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Margir hafa vanið sig á láta skjáinn á farsímanum vísa niður þegar þeir leggja símann frá sér. Þetta er gert nánast ósjálfrátt en væntanlega var upphaflega hugsunin á bak við þetta að koma í veg fyrir að skjárinn trufli þegar skilaboð berast eða í trú um að skjárinn sé öruggari. Þetta eitthvað sem við sjáum fólk oft gera heima hjá sér, á kaffihúsum eða í vinnunni.

Þetta virðist vera ósköp meinlaust en sérfræðingar hafa bent á að það fylgi því ákveðnir ókostir að láta símann snúa svona.

Eitt af því sérfræðingarnir nefna að sögn naftemporiki er að snjallsímar hitna við notkun. Þetta gerist aðallega þegar þeir eru í hleðslu eða þegar síminn er að nota orkufrek öpp. Þegar síminn liggur með skjáinn vísandi niður á við, getur loftstreymið í kringum hann verið takmarkaðra en annars. Þetta hefur ekki nein dramatísk áhrif en í vissum tilfellum getur síminn hitnað meira en gott þykir.

Raftæki virka best við stöðugt hitastig og með tímanum getur hærri hiti haft áhrif á líftíma rafhlöðunnar.

Það getur líka verið erfitt að heyra í símanum þegar skilaboð berast ef skjárinn vísar niður. Hátalarinn er oft neðst á snjallsímum. Borðplatan getur dempað hljóðið í símanum þegar hann hringir eða skilaboð berast.

Sumir símar eru einnig þannig gerðir að þeir dempa sjálfkrafa hljóðið ef skjárinn vísar niður. Það er því hætta á að eigandinn missi af hringingu eða mikilvægum skilaboðum.

Margir telja sig einnig vera að vernda skjáinn með því að láta hann vísa niður en það geta verið örsmáar rykagnir á borðinu og þær geta rispað skjáinn með tímanum.

Margir sérfræðingar ráðleggja fólki því að nota frekar hulstur eða skjávörn.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Vilhjálmur prins sagður ætla að meina Harry bróður sínum að vera viðstaddur krýninguna

Vilhjálmur prins sagður ætla að meina Harry bróður sínum að vera viðstaddur krýninguna
Pressan
Í gær

Þetta skaltu alltaf þrífa áður en þú flytur inn í nýtt hús

Þetta skaltu alltaf þrífa áður en þú flytur inn í nýtt hús
Pressan
Í gær

Nokkrar ástæður þess að fólk hefur ekki stigið fæti á tunglið síðan 1972

Nokkrar ástæður þess að fólk hefur ekki stigið fæti á tunglið síðan 1972
Pressan
Í gær

Á þessum tímapunkti lífsins sýnir einmanaleikinn sitt ljóta andlit

Á þessum tímapunkti lífsins sýnir einmanaleikinn sitt ljóta andlit
Pressan
Fyrir 2 dögum

Dýr mistök á opnunardegi pitsastaðar – Greiddu viðskiptavinum fyrir að kaupa pítsu

Dýr mistök á opnunardegi pitsastaðar – Greiddu viðskiptavinum fyrir að kaupa pítsu
Pressan
Fyrir 2 dögum

Vísindamaður aflífar mýtur um rottur

Vísindamaður aflífar mýtur um rottur