fbpx
Miðvikudagur 15.apríl 2026
Pressan

Þetta nasl inniheldur aðeins 80 hitaeiningar – Getur bætt minnið og styrkt hjartað

Pressan
Laugardaginn 4. apríl 2026 11:30

Bláber eru ljúffeng og holl og innihalda mikið af andoxunarefnum.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ef þú leitar að náttúrulegu nasli, sem getur dregið úr bólgum og styrkt hjartað og heilann, þá ertu á réttum stað.

Það skemmir ekki fyrir að þetta góða nasl inniheldur aðeins 80 hitaeiningar í venjulegum skammti og þú þarft aðeins að borða eina lúkufylli til að finna mettunartilfinningu.

Þetta eru bláber og við erum nú svo heppin hér á landi að hér vex mikið af þeim og fátt notalegra en að fara í berjamó og tína vel af bláberjum og borða síðan fersk og auðvitað er hægt að frysta þau líka til að eiga yfir veturinn.

„Bláber eru frábær uppspretta trefja, andoxunarefna og innihelda lítið af sykri og því er þetta frábært nasl,“ sagði Alexis Supan, næringarfræðingur við Cleveland Clinic, að sögn New York Post.

Bláber geta bætt kólesterólstigið, lækkað blóðþrýstinginn og styrkt hjartað og æðakerfið.

Samkvæmt niðurstöðum rannsóknar, sem var birt í vísindaritinu American Journal of Clinical Nutrition, þá batnaði „hið slæma kólesteról“ hjá þeim fullorðnu sem borðuðu einn bolla af bláberjum daglega. Þetta slæma kólesteról getur stíflað æðarnar.

Önnur rannsókn, frá 2024, sýndi að regluleg neysla á bláberjum hjálpaði til við að lækka blóðþrýstinginn sem dregur úr hættunni á að fólk fái hjartasjúkdóma.

Rannsóknir hafa einnig leitt í ljós að bláber geta styrk hugræna getu, bæta minnið og geta hamlað eða stöðvað aldurstengda hugræna hnignun.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Það sem dauðadæmd kona játaði hjá lögreglunni sækir enn á fyrrum lögreglumann

Það sem dauðadæmd kona játaði hjá lögreglunni sækir enn á fyrrum lögreglumann
Pressan
Fyrir 2 dögum

Kúba undirbýr sig undir árás frá Bandaríkjunum – „Ef við þurfum að deyja, þá deyjum við“

Kúba undirbýr sig undir árás frá Bandaríkjunum – „Ef við þurfum að deyja, þá deyjum við“