
Flestir tannbursta sig tvisvar á dag, kvölds og morgna. En það er ekki úr vegi að temja sér að drekka vatn áður en tennurnar eru burstaðar að morgni. Þetta hefur góð áhrif á heilbrigði munnsins og einnig á efnaskiptin.
Bhumesh Tyagi, læknir, sagði í samtali við Only My Health að það séu margir kostir við að drekka vatn áður en tannburstað er. Hann sagði að það sé mjög mikilvægt að drekka vatn áður en tannburstað er að morgni því þannig fjarlægi maður mikið af þeim eiturefnum sem myndast í munninum að næturlagi.
„Á meðan þú sefur, afeitrar líkaminn sig, gerir við sig, endurbyggir sig og fjarlægir ruslefni. Munnurinn er hluti af þessu ferli og fyllist af bakteríum og eiturefnum yfir nóttina,“ sagði hann.
Ef þú drekkur vatn áður en tannburstað er, þá fær líkaminn vökva eftir margar klukkustundir án næringar. Vatnið örvar nýrna – og lifrarstarfsemina og hjálpar til við að losa líkamann við eiturefni sem safnast saman í meltingarveginum.
„Þegar tennurnar eru burstaðar, fjarlægir maður eitthvað af bakteríum úr munninum en ef vatnið er drukkið áður, tryggir það að hin innri afeitrun gengur áfram vel fyrir sig,“ sagði hann.
Vatnsdrykkjan mun einnig örva efnaskiptin, hjálpa þér við að hafa stjórn á þyngdinni, bætir meltinguna og eykur hitaeiningabrennsluna.