
Það er engin ein ákveðin regla um hvar bensínlokið á að vera. Bílaframleiðendur hafa frjálsar hendur með það og taka ákvörðun um það út frá hönnun og byggingarlagi bílsins.
Staðsetningin þarf að falla að öðrum hlutum bílsins en um leið þarf hún að uppfylla öryggiskröfur. Af þessum sökum geta tvö bílamódel, sem líkjast mjög, verið með bensínlokið á sitthvorum stað.
Þrátt fyrir að það séu engar reglur þá má sjá ákveðna tilhneigingu eftir heimshlutum. Í evrópskum bílum er bensínlokið yfirleitt hægra megin en á japönskum bílum er það yfirleitt vinstra megin.
Staðsetning þess tengist að hluta umferðinni. Hugsunin er að bílstjórinn sé lengra frá umferðinni þegar hann er að dæla á bílinn. Þetta eykur öryggið, sérstaklega á bensínstöðvum þar sem er mikið að gera.
En eins og með nánast allt þá eru undantekningar á þessu. Á sumum eldri árgerðum er bensínlokið aftan á og á sumum tegundum er bensínlok á báðum hliðum.
Valið er því að mestu byggt á forgangsröðun framleiðleiðendanna.
Ef þú ert í vafa hvorum megin lokið er þá er einfalt að tékka á því. Í mælaborðinu, við hliðina á bensínmerkinu, er yfirleitt ör sem bendir í þá átt sem bensínlokið er.