fbpx
Miðvikudagur 15.apríl 2026
Pressan

Svefn er ein algengasta ástæðan fyrir styttri lífaldri – Bara reykingar hafa meiri áhrif

Pressan
Laugardaginn 4. apríl 2026 14:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Margir eyða miklum tíma í að leita að langri og hollri tilveru. Skrefin eru talin, grænmetið er vigtað og líkamsrækt er skipulögð og stunduð af kappi. En svefninn er oft meðhöndlaður eins og eitthvað sem er hægt að grípa með sér síðar. Niðurstöður nýrrar rannsóknar benda til að það geti verið dýrkeyptur vani.

Vísindamenn við Oregon Health and Science University fóru yfir upplýsingar um svefn Bandaríkjamanna, sem var aflað með spurningalistum frá 2019 til 2025, og báru væntanlegan líftíma þeirra saman við hversu mikið þeir sváfu á sólarhring.

Vísindamennirnir settu mörkin við sjö klukkustunda svefn á sólarhring. Ef fólk svaf yfirleitt styttra en það, var það flokkaður sem ónægur svefn.

Niðurstaða rannsóknarinnar var skýr: Lífslíkur þeirra, sem sváfu reglulega of lítið, voru minni en þeirra sem náðu sjö klukkustunda svefni.

Vísindamennirnir tóku einnig aðra þætti, sem geta hafa áhrif á lífslengdina, með í reikninginn. Þar á meðal skort á hreyfingu, atvinnu og menntun. En samt sem áður reyndist samhengið á milli svefnskorts og styttri ævilengd halda sér.

Aðeins einn þáttur reyndist hafa meiri áhrif: Reykingar.

Vísindamennirnir segja að of lítill svefn geti verið mjög sterk vísbending um að lífslíkur fólks séu styttri en ella.

Rannsóknin hefur verið birt í vísindaritinu Sleep Advances.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Það sem dauðadæmd kona játaði hjá lögreglunni sækir enn á fyrrum lögreglumann

Það sem dauðadæmd kona játaði hjá lögreglunni sækir enn á fyrrum lögreglumann
Pressan
Fyrir 2 dögum

Kúba undirbýr sig undir árás frá Bandaríkjunum – „Ef við þurfum að deyja, þá deyjum við“

Kúba undirbýr sig undir árás frá Bandaríkjunum – „Ef við þurfum að deyja, þá deyjum við“