fbpx
Þriðjudagur 21.apríl 2026
Pressan

Ræddi við lögregluna um eiginmann sinn – Fimm dögum síðar var hún dáin

Pressan
Laugardaginn 4. apríl 2026 21:30

Barbara Purcell

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Skilnaður Barbara og Willard Purcell var erfiður og ruglingslegur og að lokum hótaði hún að hafa samband við lögregluna. Hún óttaðist um líf sitt og það ekki að ástæðulausu.

Barbara, sem var 42 ára, hafði lengi verið að reyna að mana sig upp í að hringja í lögregluna en í hvert sinni sem hún tók símann upp og ýtti á fyrsta tölustafinn, hætti hún við. Hún óttaðist afleiðingarnar ef hún myndi segja lögreglunni frá þeim grun sem óx og óx innra með henni.

Hún var nefnilega sannfærð um að eiginmaður hennar, hinn 55 ára Willard Purcell, væri morðingi.

Fimmtudaginn 31. maí 2001 gat hún ekki lengur búið við tilhugsunina um að hún væri líklega að vernda mann sem hefði myrt saklausa konu. Þennan dag fékk hún þennan grun sinn staðfestan.

Hún og Willard voru skilin að borði og sæng og höfðu ekki búið saman í fjóra mánuði. Skilnaðarferlið var komið í harðan hnút og eftir misheppnaðan fund hjá lögmanni hringdi Barbara í Willard um kvöldið.

Það kom til harkalegra orðaskipta þeirra á milli og að lokum missti Barbara stjórn á sér og sagði að ef þau gætu ekki fundið lausn á fjárhagslegum og praktískum vandamálum fljótlega myndi hún kæra hann til lögreglunnar fyrir morðið á fyrri eiginkonu hans, Crystal Purcell.

Crystal var aðeins 39 ára þegar hún lést þann 27. júlí 1987 við dramatískar kringumstæður. Svo virtist sem hún hefði dottið niður stigann heima hjá sér.

Willard var grunaður um að hafa myrt hana en saksóknarar féllu að lokum frá ákæru vegna skorts á sönnunum.

Sex árum síðar giftist Willard Barbara og óhætt er að segja að það hjónaband hafi einnig endað hörmulega.

Nú læt ég lögregluna vita

Willard hafði margoft gefið í skyn við Barbara að hann bæri ábyrgð á dauða Crystal og þegar þau rifust hafði hann oft hótað henni með að henna biðu sömu örlög og Crystan ef hún hegðaði sér ekki almennilega.

Eftir fundinn hjá lögfræðingnum og í lok símtals þeirra hjóna sagði Barbara: „Þegar þessu samtali lýkur, hringi ég í lögregluna og segi að þú sért morðingi. Þú drapst fyrri eiginkonu þína. Allir vita að dauði Crystal var ekki slys. Þetta var morð og þú ert morðinginn.“

Willard svaraði henni og sagði að ef hún hefði samband við lögregluna, myndi það reynast henni dýrkeypt.

Williard Purcell

 

 

 

 

 

 

Þetta samtal átti sér stað að kvöldi til fimmtudaginn 31. maí 2001. Þremur mínútum eftir að því lauk hringdi Barbara í lögregluna í Rockford. Hún hafði loksins hert upp hugann til að segja lögreglunni að Willard hefði myrt fyrri eiginkonu sína. „Ég er viss um að maðurinn minn myrti fyrri eiginkonu sína. Ég er enn gift honum og er hrædd um að ég verði næsta fórnarlamb hans,“ hvíslaði hún nánast í símann.

Hún samdi við lögregluna um að hún myndi koma á lögreglustöðina næsta dag til að gefa ýtarlega skýrslu.

Það gerði hún og hitti Margie O‘Connor, sem stýrði morðdeildinni, og ræddi við hann. Hann tók þessu mjög alvarlega og sótti málsgögnin og lofaði að hefja rannsókn á málinu á nýjan leik.

Fjögur högg

Miðvikudaginn 6. júní mætti Barbara ekki í vinnuna en hún starfaði sem iðjuþjálfi hjá bæjarfélaginu.

Yfirmaður hennar hringdi í lögregluna sem fór að heimili hennar. Engin svaraði þegar lögreglumaðurinn knúði dyra og því gekk hann hring um húsið. Bakdyrnar voru hálfopnar og rúða var brotin. Hún hafði verið brotin innan frá og flest glerbrotin lágu utanhúss. Þegar engin svaraði köllum lögreglumannsins fór hann inn í húsið.

Neðan við stigann upp á aðra hæð lá lík Barbara. Það var blóð á mörgum tröppum og lítill blóðpollur í eldhúsinu nærri stiganum.

Lögreglumaðurinn var ekki í neinum vafa um að hér hefði glæpur verið framinn og kallaði morðdeildina á vettvang.

Margie brá mjög þegar hann kom á vettvang og sá að Barbara var fórnarlambið.

Margie O´Connor

 

 

 

 

 

 

 

 

Mark Peters, réttarmeinafræðingur, úrskurðaði að Barbara hefði verið myrt með fjórum höggum í höfuðið með hörðum hlut og að það væri útilokað að óhapp hefði orðið henni að bana.

Hún hafði verið myrt 12-15 klukkustundum áður en líkið fannst. Hún var næstum nakin og margt benti til að hún hefði verið beitt kynferðislegu ofbeldi. Rannsókn leiddi þó í ljós að henni hafði ekki verið nauðgað.

Þrátt fyrir að hún og Willard væru skilin að borði og sæng, gekk hún enn með giftingarhringinn en nú vantaði hann á fingur hennar.

Morðinginn hafði einnig tekið fjölda verðmætra muna úr húsinu, meðal annars myntsafn og skartgripi. Lögreglan taldi þetta benda til að morðinginn hefði viljað láta þetta líta út fyrir að hafa verið rán og kynferðisofbeldi.

Margie undraðist að rúðan hafði verið brotin innan frá og gat ekki vikið samtalinu við Barbara úr huga sér.

Það var því engin furða að Willard var efstur á lista yfir grunaða.

Á grasi grónu svæði bak við hús Barbara fann lögreglan hjólför sem reyndust passa við dekkin undir bíl Willard.

Hann var tekinn til yfirheyrslu en sagðist ekkert vita um morðið og þess utan hefði hann ekið til Chicago klukkan 15 daginn áður. Það er um eins og hálfrar klukkustunda akstur þangað frá Rockford. Hann sagðist hafa hjálpað bróður sínum og hafi ekki farið aftur heim til Rockford fyrr en daginn eftir í kjölfar þess að honum var skýrt frá dauða Barbara.

Bróðir hans staðfesti að Willard hefði komið í heimsókn en að hann hefði stoppað mjög stutt og hefði verið farinn fyrir klukkan 18.

Barbara var myrt um klukkan 21 að sögn réttarmeinafræðinga.

Símtalaskrá Willard sýndi að hann hafði hringt sex símtöl á milli klukkan 20.30 og 21.30 og hafði þá notað farsímasendi nokkur hundruð metra frá heimili Barbara.

Syrti í álinn

Það syrti heldur betur í álinn fyrir Willard þegar lögreglan fékk húsleitarheimild og framkvæmdi leit heima hjá honum. Þar fann hún marga af þeim munum sem hafði verið stolið af heimili Barbara. Meðal þessara muna voru myntsafnið, skartgripir og giftingarhringurinn.

Willard sagði að Barbara hefði gefið honum þessa muni í tengslum við skilnað þeirra en það gat bara ekki verið.

Beverly Swadley, ein besta vinkona Barbara, sagði lögreglunni að hún hefði séð Barbara, með giftingarhringinn á fingri sér, daginn sem hún var myrt.  Hún sagði einnig að myntsafnið væri það síðasta sem Barbara hefði gefið manninum sínum, ekki af því að það væri verðmætt, heldur af því að hún hafði erft það eftir foreldra sína.

Barbara og Beverly Swadley

 

 

 

 

 

 

Hjólförin, myntsafnið, giftingarhringurinn og lygin varðandi heimsóknina til bróðurins var ekki það eina sem benti á Willard sem morðingja. Það voru nefnilega bitför á hægri hönd Barbara og á þeirri vinstri rispur. Þetta benti til að hún hefði barist fyrir lífi sínu.

Lögreglan fékk heimild hjá dómara til að láta gera afsteypu af tönnum Willard og hún styrkti stöðu hennar enn frekar því hún sýndi að bitförin á Barbara voru með 100% öryggi eftir Willard.

Hann var því kærður fyrir morð og í kjölfarið breytti hann framburði sínum.

Hann sagði að Barbara hefði boðið honum heim svo þau gætu rætt ágreiningsefni sín í rólegheitum. Hann sagði að stemmningin hefði fljótlega versnað og úr orðið heiftarlegt rifrildi. Í kjölfar þess hefði Barbara farið upp á efri hæðina. Þegar hann hafi farið upp til að sjá hvað hún var að gera, hafi komið til handalögmála og á leið niður hafi Barbara hrasað og lent illa á höfðinu.

Hann sagðist ekki hafa talið hana hafa slasast alvarlega og því hafi hann ekki hringt eftir aðstoð. Hann sagðist hafa rætt við hana áður en hann ók heim. Réttarmeinafræðingar sögðu að það gæti hann ekki hafa gert því því hún hafði verið slegin fjórum sinnum í höfuðið og hefði misst meðvitund samtímis.

Nú var Willard ákærður fyrir morð.

Dómurinn

Margie gat ekki gleymt fullyrðingu Barbara um að Willard hefði myrt fyrri eiginkonu sína 1987.

Málið var tekið til rannsóknar á nýjan leik og lík Crystal var grafið upp svo réttarmeinafræðingar gætu rannsakað það.

7 cm skurður fannst á höfuðkúpu hennar. Hann gat hafa komið þegar hún var slegin með hörðum hlut.

En ekki var hægt að skera úr því með fullri vissu að Crystal hefði verið myrt og það var ekki hægt að útiloka að hún hefði dottið niður stigann fyrir slysni.

Willard var því aðeins ákærður fyrir morðið á Barbara þegar hann kom fyrir dóm í október 2002.

Saksóknara tókst ekki að sannfæra kviðdóminn um að Willard hefði myrt Barbara af ásettu ráði en hann var dæmdur í 20 ára fangelsi fyrir manndráp af gáleysi.

Í ágúst 2003 hafnaði áfrýjunardómstóll beiðni um að taka mál hans fyrir.

Hann lést í Menard fangelsinu í Illinois í september 2015.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Tveir lögreglumenn dæmdir til dauða fyrir dráp á mótmælanda

Tveir lögreglumenn dæmdir til dauða fyrir dráp á mótmælanda
Pressan
Í gær

Vísindamenn segja niðurstöður nýrrar rannsóknar um gagnaver mikið áhyggjuefni

Vísindamenn segja niðurstöður nýrrar rannsóknar um gagnaver mikið áhyggjuefni
Pressan
Fyrir 2 dögum

Notar þú símann þegar þú ert að elda? – Þá skaltu hugsa þig vel um

Notar þú símann þegar þú ert að elda? – Þá skaltu hugsa þig vel um
Pressan
Fyrir 2 dögum

Ertu komin(n) yfir fimmtugt? – 4 auðveldar æfingar sem geta hjálpað þér að minnka magafituna

Ertu komin(n) yfir fimmtugt? – 4 auðveldar æfingar sem geta hjálpað þér að minnka magafituna