
Segir öryggislögreglan að sífellt fleiri ógnir steðji að Svíþjóð og að þróunin sé bara á einn veg.
Rússland er fyrirferðarmikið í skýrslunni að sögn Ekstra Bladet.
Rússland er sagt vera stærsta ógnin sem steðjar að Svíþjóð og segja skýrsluhöfundar að ástandið muni bara versna á næstu árum. Ástæðan er meðal annars að Rússar eru frekar reiðubúnir til að taka áhættu en áður og aðgerðir þeirra geta skapað óöryggi á svæðinu.
Säpo segir að raunveruleg hætta sé á að Rússar muni reyna að fremja skemmdarverk og hafi jafnvel gert það nú þegar, að minnsta kosti er Säpo að rannsaka marga grunsamlega atburði.
En það leikur engin vafi á að tölvuárásir eiga sér nú þegar stað. Margar þeirra hafa verið tengdar við hópa sem tengjast rússneskum leyniþjónstustofnunum.