
Flugfreyja, sem vill ekki láta nafns síns getið, sagði í samtali við TRAVELBOOK að það skipti meira máli en margir telja hvar setið er í flugvélinni þegar kemur að því að geta sofið.
Fyrir þá sem hafa efni á, þá liggur auðvitað beint við að kaupa dýrustu sætin því það er oft hægt að leggja þau næstum alveg niður og því auðveldara að sofa.
En fyrir okkur sauðsvartan almúgann þá eru möguleikarnir takmarkaðir en sætavalið skiptir samt sem áður miklu máli. Flugfreyjan sagði að bestu sætin séu yfirleitt fremst í vélinni. Þar er hávaðinn oft minni og farþegar finna minna fyrir ókyrrð í lofi en þeir sem sitja aftast.
Að hennar sögn er best að sitja við glugga því þá er hægt að halla höfðinu að veggnum og um leið sleppur maður við truflanirnar sem fylgja því að sitja við ganginn.