fbpx
Þriðjudagur 21.apríl 2026
Pressan

Er valdarán í uppsiglingu í Moskvu? – Bætir í orðrómana

Pressan
Laugardaginn 4. apríl 2026 12:00

Vladímír Pútín hefur kannski áhyggjur af valdaráni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fjöldi atburða í Moskvu á síðustu vikum hafa ýtt undir orðróma um að farið sé að hitna undir Vladímír Pútín forseta og að valdarán kunni að vera í uppsiglingu.

Það þarf ekki að leita lengi á samfélagsmiðlum til að finna myndbönd af óánægðum Rússum. Lokað hefur verið fyrir Internetið í hluta Moskvu. Þetta eru bara tveir af undarlegum atburðum sem hafa átt sér stað í Rússlandi að undanförnu.

Erlendir fjölmiðlar á borð við The Sun, Daily Mirror og aol hafa fjallað um að hugsanlega sé valdarán í undirbúningi.

Á bak við það er Sergei Shoigu, fyrrum varnarmálaráðherra, sagður standa. Hann var lengi einn nánasti trúnaðar- og samstarfsmaður Pútíns. Muna eflaust margir eftir ljósmyndum af þeim saman, berum að ofan, við veiðar í Tuva.

Shoigu var lækkaður í tign af Pútín 2024 og segja orðrómar í Moskvu að vinátta þeirra hafi beðið hnekki við þetta. Það kom kannski vel í ljós fyrir nokkrum vikum þegar náinn bandamaður Shoigu, Ruslan Tsalikov, var handtekinn, sakaður um spillingu.

En svo virðist sem fjöldi vandamála innanlands hafi haft í för með sér að óánægjan með Pútín hefur náð nýjum hæðum. Það þarf ekki að koma á óvart að megnið af þessu tengist stríðinu í Úkraínu.

Svo virðist sem margir Rússar hafi nú áttað sig á að stríðið muni vara lengi og að það sé erfitt. Það bætir ekki úr skák að Pútín lét loka fyrir samfélagsmiðilinn Telegram. Það hefur komið illa niður á hernaðinum í Úkraínu því hermenn hafa notað samfélagsmiðilinn við skipulagningu hernaðarins.

Þessu til viðbótar kemur að gríðarlegu fjöldi Rússa hefur fallið á vígvellinum í Úkraínu. Bensínverð hefur hækkað sem og verð á gasi. Miklu minna úrval er af vestrænum varningi í verslunum en fyrir stríð.

Sérfræðingar segja að allt þetta geti verið eitraður kokteill fyrir Pútín. Sífellt fleiri merki sjáist um að almenningur sé orðinn þreyttur á stríðinu og áhrifum þess á daglegt líf hans.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Tveir lögreglumenn dæmdir til dauða fyrir dráp á mótmælanda

Tveir lögreglumenn dæmdir til dauða fyrir dráp á mótmælanda
Pressan
Í gær

Vísindamenn segja niðurstöður nýrrar rannsóknar um gagnaver mikið áhyggjuefni

Vísindamenn segja niðurstöður nýrrar rannsóknar um gagnaver mikið áhyggjuefni
Pressan
Fyrir 2 dögum

Notar þú símann þegar þú ert að elda? – Þá skaltu hugsa þig vel um

Notar þú símann þegar þú ert að elda? – Þá skaltu hugsa þig vel um
Pressan
Fyrir 2 dögum

Ertu komin(n) yfir fimmtugt? – 4 auðveldar æfingar sem geta hjálpað þér að minnka magafituna

Ertu komin(n) yfir fimmtugt? – 4 auðveldar æfingar sem geta hjálpað þér að minnka magafituna