fbpx
Þriðjudagur 21.apríl 2026
Pressan

Barron Trump er „einfari“ og ólíkur Donald Trump að einu leyti

Pressan
Laugardaginn 4. apríl 2026 19:00

Barron, Melania og Donald Trump. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Barron Trump, yngsta barn Donald Trump og eina barn Melania Trump, varð nýlega tvítugur. Fólk í innsta hring hefur lýst honum sem „nákvæmri eftirmynd föður síns“ en hann er þó sagður líkjast móður sinni mjög að einu leyti og það geri hann mjög ólíkan föður sínum.

 The Mirror skýrir frá þessu og segir að Barron hafi stundað nám við dýra einkaskóla á Manhattan í New York en hafi hafið nám við New York University 2024 en hafi síðan fært sig um set til Washington D.C. síðasta haust þar sem hann stundar nám við útibú New York University.

Barron er þekktur fyrir að halda sig utan sviðsljóssins og vera mjög hlédrægur. Hann er sagður sýna sífellt meiri áhuga á að verða frumkvöðull. Heimildarmaður, sem stendur honum nærri, sagði í samtali við People að hann sé nú að undirbúa sig fyrir næsta „tímabil lífsins“ þar sem hann ætli að „finna verkefni sem séu ekki bara áhugaverð, heldur færi honum einnig mikið af peningum“.

Heimildarmaðurinn sagði að Barron hafi erft áhuga föður síns á að græða peninga og skapa sér nafn. Hann sagði að Barron sé ólíkur systkinum sínum að því leyti að hann sé „einfari“. Hann hafi alist upp í sviðsljósinu og líði ekki endilega vel í því. Þetta hafi gert hann að einfara.

Annar heimildarmaður sagði einnig að Barron sé mjög hlédrægur en sé um leið nákvæm eftirmynd föður síns en „sem betur fer laus við hroka hans“. Hann líkist frekar móður sinni að þessu leyti, sé hljóðlátur og fágaður.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Blind kona skildi ekki hvað hafði orðið af manninum hennar – Lögreglan uppgötvaði óhugnanlegan sannleikann

Blind kona skildi ekki hvað hafði orðið af manninum hennar – Lögreglan uppgötvaði óhugnanlegan sannleikann
Pressan
Í gær

Herða reglurnar – Ferðamenn verða að greiða 1,8 milljónir til að fá að koma til Bandaríkjanna

Herða reglurnar – Ferðamenn verða að greiða 1,8 milljónir til að fá að koma til Bandaríkjanna
Pressan
Fyrir 2 dögum

Banvænn misskilningur kom upp um hið sanna eðli lögreglumannsins

Banvænn misskilningur kom upp um hið sanna eðli lögreglumannsins
Pressan
Fyrir 2 dögum

„Ég sagði honum að hann væri í röngu gati“ – „Síðan komst ég að ástæðunni“

„Ég sagði honum að hann væri í röngu gati“ – „Síðan komst ég að ástæðunni“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Ertu komin(n) yfir fimmtugt? – 4 auðveldar æfingar sem geta hjálpað þér að minnka magafituna

Ertu komin(n) yfir fimmtugt? – 4 auðveldar æfingar sem geta hjálpað þér að minnka magafituna
Pressan
Fyrir 2 dögum

Sænskur einfari handtekinn 21 ári eftir tvö morð

Sænskur einfari handtekinn 21 ári eftir tvö morð