
Robert Fico, forsætisráðherra, kynnti þessa áætlun nýlega og sagði að með þessu vilji ríkisstjórnin vernda landið fyrir „eldsneytistúrisma“.
Hann sagði að talsmenn Slovnafn olíufélagsins hafi bent ríkisstjórninni á að í sumum héruðum í norðurhluta landsins, næst Póllandi, sé verðið á dísilolíu lægra en hjá nágrönnunum. Þetta hafi meðal annars orðið til þess að dísilolía hafi klárast á sumum bensínstöðvum.
The Independent skýrir frá þessu og segir að Fico hafi einnig sagt að ríkisstjórnin vilji tryggja að eldsneytisverðið í landinu sé sambærilegt við flest nágrannaríkin, til dæmis Pólland, en þó lægra en í Austurríki.