fbpx
Þriðjudagur 21.apríl 2026
Pressan

Lögreglan gafst aldrei upp: Christina fundin á lífi 32 árum eftir að hún hvarf

Pressan
Föstudaginn 3. apríl 2026 14:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kona frá Arizona í Bandaríkjunum, sem hvarf aðeins 13 ára gömul árið 1994, fannst á lífi í vikunni, tæpum 32 árum eftir að síðast sást til hennar.

Konan sem um ræðir heitir Christina Marie Plante, sem hvarf frá Star Valley, litlu samfélagi í fjalllendi norðaustur af Phoenix í Arizona. Hvarf hennar vakti mikla athygli á sínum tíma og var ráðist í umfangsmikla leit þar sem bæði lögregla og sjálfboðaliðar komu að.

Þrátt fyrir að rannsóknin hafi síðar verið skilgreind sem kalt mál var henni aldrei formlega lokað. Málið var reglulega tekið til endurskoðunar og síðar fært til sérhæfðrar deildar sem sinnir óupplýstum eldri málum.

Í tilkynningu frá skrifstofu sýslumanns í Gila-sýslu, sem NBC vitnar til, kemur fram að tækniframfarir og ítarleg endurskoðun málsins hafi skipt sköpum við að finna Christinu.

Af virðingu fyrir friðhelgi einkalífs Plante hafa yfirvöld ekki birt frekari upplýsingar um hvar hún fannst, við hvaða aðstæður eða hvernig hvarf hennar bar að á sínum tíma.

Christina hvarf þann 15. maí árið 1994 þegar hún var á gangi frá heimili sínu í leið að hesthúsi þar sem hún átti hest.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Tveir lögreglumenn dæmdir til dauða fyrir dráp á mótmælanda

Tveir lögreglumenn dæmdir til dauða fyrir dráp á mótmælanda
Pressan
Í gær

Vísindamenn segja niðurstöður nýrrar rannsóknar um gagnaver mikið áhyggjuefni

Vísindamenn segja niðurstöður nýrrar rannsóknar um gagnaver mikið áhyggjuefni
Pressan
Fyrir 2 dögum

Notar þú símann þegar þú ert að elda? – Þá skaltu hugsa þig vel um

Notar þú símann þegar þú ert að elda? – Þá skaltu hugsa þig vel um
Pressan
Fyrir 2 dögum

Ertu komin(n) yfir fimmtugt? – 4 auðveldar æfingar sem geta hjálpað þér að minnka magafituna

Ertu komin(n) yfir fimmtugt? – 4 auðveldar æfingar sem geta hjálpað þér að minnka magafituna