
Sérfræðingar vara við því að það sé einmitt nartið á milli mála – þegar fólk leitar að aðgengilegu orkuskoti – sem oft vegi þyngra fyrir hjartaheilsuna en margir geri sér grein fyrir.
Sérstaklega eru kartöfluflögur, kexkökur og annað pakkað snarl nefnd sem matvæli sem læknar reyna sjálfir að forðast.
Slíkar vörur eru oft flokkaðar sem ofurunnin matvæli og innihalda gjarnan mikið magn af salti, sykri, mettaðri fitu og trefjasnauðum kolvetnum.
Andrew Freeman, hjartalæknir og yfirmaður forvarna og vellíðunar í hjarta- og æðalækningum við NJH-sjúkrahúsið í Denver, segir í samtali við USA Today að þægindi nútímalífsins þurfi ekki að leiða sjálfkrafa til þess að fólk velji unnin og pakkað matvæli.
„Náttúran hefur þegar útvegað okkur þann mat sem við eigum að borða; við þurfum bara að velja hann,“ segir hann.
Vísindarannsóknir styðja þessi sjónarmið. Bandarísku hjartasamtökin hafa ítrekað bent á að mikil neysla ofurunninna matvæla tengist aukinni hættu á hjarta- og efnaskiptasjúkdómum, langvinnum veikindum og hærri dánartíðni.
Næringarfræðingar benda jafnframt á að millimál sé ekki alltaf nauðsynlegt og geti í sumum tilvikum orðið að vana sem gerir fólki erfiðara fyrir að halda þyngd í skefjum.
Vilji fólk grípa í eitthvað á milli mála er hins vegar hægt að velja kosti sem eru betri fyrir hjartað. Þar nefna sérfræðingar epli, gulrætur og fleiri ávexti og grænmeti, sem og hnetur, graskersfræ, hreint jógúrt og hummus með grænmeti.
Slík matvæli eru trefjarík og stuðla að hægari hækkun blóðsykurs, meiri seddu og minni líkum á ofáti. Aukin trefjaneysla getur einnig hjálpað til við að lækka kólesteról og styðja við eðlilegan blóðþrýsting, sem dregur úr áhættu á hjarta- og æðasjúkdómum.