
Myro Figura, læknir í Los Angeles, segir að ákveðin hreinlætisáskorun fylgi því að vera með alskegg. Áhætta sem fæstir hugsi út í þegar þeir færa sig nær kærustunni eða kærastanum.
Figur útskýrði þetta á Instagram og sagði það vera slæma hugmynd að kyssa mann með alskegg ef hann þrífur það ekki almennilega.
En hvað er það sem gerir alskeggið svona „hættulegt“?
Figura fór nánar út í það í færslu sinni og sagði:
„Getur það að kyssa mann með alskegg valdið sýkingu? Það getur það svo sannarlega.“
„Ef skeggið er ekki hreint, getur það hýst fjölda baktería eins og stafýlókokka og streptókokka. Þegar fólk kyssist, getur skeggið gert örsmá göt á húðina og þar geta bakteríurnar farið inn og valdið sýkingu sem nefnist impetigo.“
Impetigo (barnasár) er bráðsmitandi húðsýking sem smitast auðveldlega við snertingu. Hún byrjar yfirleitt með rauðu sári eða blöðrum sem springa og vökvi lekur úr þeim. Einkennir eru rauð sár sem fólk klæjar í, þau springa og glær vökvi lekur út í nokkra daga.
Sárin geta myndast alls staðar á húðinni.
Það er sem betur fer ekki útilokað að vera með flott skegg og eiga kærustu/kærasta án húðsýkinga. Það skiptir einfaldlega miklu máli að þrífa skeggið vel því það safnar auðveldlega skít, svita og bakteríum í sig.
Það þarf því að þvo það reglulega með sápu og hreinu vatni.