fbpx
Miðvikudagur 13.maí 2026
Pressan

Fjórir bollar af þessum heita drykk geta hægt á öldrun

Pressan
Sunnudaginn 12. apríl 2026 14:30

Hefur þú smakkað kaffi með ólífuolíu? Mynd/Pexels

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það getur hægt á líkamlegu öldrunarferli og dregið úr líkunum á að verða veikburða á efri árum ef maður drekkur ákveðinn heitan drykk daglega. Þetta eru niðurstöður nýrrar rannsóknar.

Niðurstöður rannsóknarinnar eru að fólk, sem drekkur kaffi, getur sloppið við nokkur af þeim einkennum sem fylgja því að eldast.

Nánar tiltekið þá sýndi rannsóknin að það að drekka reglulega fjóra til sex kaffibolla daglega dregur úr líkunum á að fólk verði veikburða á efri árum. Meiri kaffineysla en þetta hefur einnig sömu áhrif. Express skýrir frá þessu.

Rannsóknin, sem var kostuð af Institute for Scientific Information on Coffee (ISIC), er sú fyrsta sem gerð hefur verið um tengsl kaffineyslu og undirliggjandi þátta í að fólk verði veikburða á efri árum.

Eldri rannsóknir hafa sýnt fram á að kaffineysla dregur úr líkunum á ákveðnum aldurstengdum sjúkdómum og um leið bætt hugræna getu og veitt vernd gegn ýmsum bólgusjúkdómum.

Nýja rannsóknin, sem hefur verið birt í vísindaritinu European Journal of Nutrition, eykur enn á þekkingu okkar á þessu sviði.

Vísindamennirnir fylgdust með tæplega 1.200 manns, eldri en 55 ára, í sjö ár í gegnum Longitudinal Ageing Study Amsterdam. Tengslin á milli kaffineyslu og þess að vera veikburða voru rannsökuð.

Þátttakendurnir voru taldir vera veikburða ef minnst þrír af eftirfarandi þáttum hrjáðu þá: Þyngdartap, veikleiki, örmögnun, hægur gangur og lítil líkamleg hreyfing.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 3 dögum

Höfuð fjölskyldunnar átti sér dökka hlið – Dökkir skuggar fortíðarinnar

Höfuð fjölskyldunnar átti sér dökka hlið – Dökkir skuggar fortíðarinnar
Pressan
Fyrir 3 dögum

Svona lengi er hægt að geyma kjöt í frysti

Svona lengi er hægt að geyma kjöt í frysti