fbpx
Þriðjudagur 21.apríl 2026
Pressan

Verður fyrsta konan sem tekin er af lífi í Tennessee í yfir 200 ár

Pressan
Miðvikudaginn 1. apríl 2026 07:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Flest bendir til þess að Christa Gail Pike verði tekin af lífi þann 30. september næstkomandi. Verði aftakan framkvæmd verður hún fyrsta konan sem tekin er af lífi í ríkinu í meira en 200 ár.

Mál Pike hefur um árabil vakið mikla athygli í Bandaríkjunum vegna hrottalegs morðs sem hún framdi aðeins 18 ára gömul. Hún var árið 1996 sakfelld fyrir morð af yfirlögðu ráði á Colleen Slemmer, sem þá var 19 ára.

Colleen var pyntuð og myrt í skóglendi nærri landbúnaðarsvæði Háskólans í Tennessee í janúar 1995.

Afbrýðisemi vegna kærasta

Samkvæmt dómsgögnum lokkaði Pike Slemmer á staðinn eftir að hafa orðið afbrýðisöm vegna kærasta síns, Tadaryl Shipp, sem þá var 17 ára. Taldi Christa að Colleen væri að reyna við hann og hefði í hyggju að stela honum af henni.

Morðið var sérlega hrottafengið en fyrir dómi kom fram að Pike hafi skorið Colleen með hnífi, barið hana með kjötexi og brotið höfuðkúpu hennar með gangstéttarhellu. Þá var fimmarma stjarna rist í bringu Slemmer, en Christa og kærasti hennar voru sögð áhugasöm um dulspeki og djöfladýrkun á þeim tíma sem morðið var framið.

Maður sem fann lík Colleen sagðist í fyrstu hafa talið að um hræ af dýri væri að ræða, svo illa leikin var hún.

Eftir morðið tók Pike brot úr höfuðkúpu Colleen með sér, sýndi skólafélögum sínum það og montaði sig af verknaðinum. Hún játaði síðar að hafa haldið árásinni áfram jafnvel þegar Colleen grátbað hana um að hætta.

Segist finna fyrir mikilli iðrun

Pike varð fimmtug fyrr í þessum mánuði og hefur setið á dauðadeild frá sakfellingu sinni árið 1996. Kærasti hennar hlaut lífstíðardóm með möguleika á reynslulausn, en annar samverkamaður fékk skilorð.

Mál hennar hefur farið í gegnum langt og flókið áfrýjunarferli. Verjendur hennar hafa byggt málflutning sinn meðal annars á því að æska hennar hafi einkennst af alvarlegu líkamlegu og kynferðislegu ofbeldi, vanrækslu og geðrænum veikindum. Verjendateymi hennar hefur barist fyrir því að fá dauðadómnum breytt, en enn sem komið er hefur það ekki skilað árangri. Hafa þeir bent á að hún finni fyrir djúpri iðrun vegna morðsins.

Í bréfi sem Pike skrifaði hefur hún einnig lýst iðrun sinni:

„Ég var geðveik 18 ára stelpa. Það tók mig mörg ár að átta mig á alvarleika þess sem ég hafði gert. Enn lengri tíma að sætta mig við hversu mörg líf ég hafði áhrif á. Ég tók líf barns, systur og vinkonu einhvers. Það veldur mér ógleði í dag að hugsa til þess að manneskja jafn kærleiksrík og samúðarfull og ég hefði getað framið slíkan glæp.“

Lögmenn hennar halda því einnig fram að ef málið kæmi fyrir dóm í dag væri ólíklegt að dauðarefsingu yrði beitt.

Vill klára málið

Í janúar höfðaði lögfræðiteymi Pike mál gegn ríkinu vegna fyrirhugaðrar aftöku með banvænni sprautu. Þau telja að aðferðin, aftaka með banvænni lyfjablöndu, geti valdið henni óhóflegum sársauka og þar með brotið gegn stjórnarskrárvörðum réttindum hennar. Þá hafa lögmenn hennar bent á að Pike glími við blóðsjúkdóm sem geti aukið hættu á fylgikvillum. Yfirvöld í Tennessee hafa hafnað þessum rökum og aðstandendur Colleen vilja gjarnan að réttlætinu verði fullnægt.

Móðir hennar, May Martinez, sagði í viðtali að biðin hefði verið henni þungbær.

„Hjarta mitt brotnar á hverjum einasta degi því ég held áfram að upplifa þetta aftur og aftur, og ég get þetta ekki lengur. Ég vil að þetta gerist áður en ég dey. Það líður ekki sá dagur að ég hugsi ekki um Colleen eða hvernig hún dó og hversu hræðilegt það var. Ég vil bara að þessu ljúki svo dóttir mín geti loksins fengið frið.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Tveir lögreglumenn dæmdir til dauða fyrir dráp á mótmælanda

Tveir lögreglumenn dæmdir til dauða fyrir dráp á mótmælanda
Pressan
Í gær

Vísindamenn segja niðurstöður nýrrar rannsóknar um gagnaver mikið áhyggjuefni

Vísindamenn segja niðurstöður nýrrar rannsóknar um gagnaver mikið áhyggjuefni
Pressan
Fyrir 2 dögum

Notar þú símann þegar þú ert að elda? – Þá skaltu hugsa þig vel um

Notar þú símann þegar þú ert að elda? – Þá skaltu hugsa þig vel um
Pressan
Fyrir 2 dögum

Ertu komin(n) yfir fimmtugt? – 4 auðveldar æfingar sem geta hjálpað þér að minnka magafituna

Ertu komin(n) yfir fimmtugt? – 4 auðveldar æfingar sem geta hjálpað þér að minnka magafituna