

Trump lýsti þessu í færslu á samfélagsmiðli sínum Truth Social í dag.
Forseti íranska þingsins, Mohammad-Bagher Ghalibaf, hafnaði þessum fullyrðingum og sakaði Trump um að stunda „stríðsgróðabrask“.
Samhliða þessu hafa írönsk stjórnvöld gefið til kynna að óbein samskipti við Washington hafi átt sér stað, án þess þó að kalla það formlegar samningaviðræður.
Trump sagði að ekkert vopnahlé kæmi til greina fyrr en Hormuz-sundið væri „opið og greiðfært“ en sundið gegnir gríðarlega mikilvægu hlutverki þegar kemur að flutningum með olíu og gas. síðustu vikur.
Segir Trump að bandarískar hersveitir muni halda árásum áfram þar til sundið opnast.
„Þangað til ætlum við að sprengja Íran í algjöra tortímingu eða, eins og sagt er, aftur til steinaldar,“ sagði forsetinn.
Olíuverð hefur lækkað lítillega síðustu daga eftir að Trump gaf til kynna að hernaðaraðgerðum gæti lokið innan tveggja til þriggja vikna, jafnvel án formlegs samkomulags.