fbpx
Miðvikudagur 15.apríl 2026
Pressan

Segir föður sinn hafa varpað sprengju í FaceTime-símtali

Pressan
Miðvikudaginn 1. apríl 2026 10:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sonur svæfingalæknis á Hawaii, sem sakaður er um að hafa reynt að bana eiginkonu sinni í gönguferð á afmælisdegi hennar í mars í fyrra, bar í gær vitni gegn föður sínum fyrir dómi. Málið hefur vakið mikla athygli í Bandaríkjunum en DV fjallaði um réttarhöldin í vikunni.

Sjá einnig: Lýsir því þegar eiginmaðurinn reyndi að myrða hana á afmælisdaginn – „Ég er kominn með nóg af ruglinu í þér. Ég er kominn með nóg af þér“

Læknirinn, Gerhardt Konig, hafði sakað konu sína, Arielle Koning, um framhjáhald og ákvað í afbrýðisemiskasti að drepa hana.

Samkvæmt ákæruvaldinu á Hawaii reyndi Konig að berja hana til dauða með grjóti. Eins reyndi hann að sprauta hana með óþekktu efni. Loks reyndi hann að hrinda henni framan af klettabrún. Þrjár morðtilraunir á stuttum tíma sem heppnuðust þó, sem betur fer ekki. Vegfarendur komu að og hringdu þeir í neyðarlínuna áður en Gerhardt lagði á flótta.

Sonur hjónanna, Emile Konig, 19 ára, sagði fyrir dómi í gær að faðir hans hefði í FaceTime-símtali 24. mars í fyrra viðurkennt að hafa reynt að drepa móður hans og sagðist jafnframt ætla að svipta sig lífi.

Að sögn sonarins sagði faðir hans að eiginkonan hefði haldið fram hjá sér og að hann hefði reynt að bana henni. Þá hafi hann bætt við að hann myndi ekki snúa aftur til Maui og hvatt son sinn til að hugsa vel um yngri systkin sín. Emile sagði einnig að faðir hans hefði sagst ætla að stökkva fram af bjargi, en hann hefði reynt að fá hann ofan af því.

Vitnisburður sonarins stóð í innan við klukkustund. Hann horfði ekki á föður sinn þegar hann gekk inn í réttarsalinn.

Konig hefur neitað sök í málinu, þar sem hann er ákærður fyrir tilraun til manndráps af annarri gráðu. Verjandi hans heldur því fram að hann hafi brugðist við í sjálfsvörn eftir að Arielle réðst á hann. Sonurinn sagði hins vegar að í símtalinu eftir atvikið hefði faðir hans aldrei minnst á sjálfsvörn.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Það sem dauðadæmd kona játaði hjá lögreglunni sækir enn á fyrrum lögreglumann

Það sem dauðadæmd kona játaði hjá lögreglunni sækir enn á fyrrum lögreglumann
Pressan
Fyrir 2 dögum

Kúba undirbýr sig undir árás frá Bandaríkjunum – „Ef við þurfum að deyja, þá deyjum við“

Kúba undirbýr sig undir árás frá Bandaríkjunum – „Ef við þurfum að deyja, þá deyjum við“