
Úlfum var útrýmt í Þýskalandi fyrir rúmum hundrað árum, en þeir sneru aftur í kringum síðustu aldamót og hefur þeim fjölgað jafnt og þétt síðan þá. Talið er að atvikið í vikunni sé það fyrsta sinnar tegundar frá því að úlfar sneru aftur til landsins.
Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu átti atvikið sér stað nálægt Ikea-verslun, um fjóra kílómetra frá miðborg Hamborgar. Konan reyndi að aðstoða ringlaðan úlf sem hafði ítrekað rekist á glervegg og virtist ekki finna leið út úr aðstæðunum. Við það beit dýrið hana í andlitið.
Yfirvöld telja að um ungan úlf hafi verið að ræða sem hafi villst frá hópi sínum og verið á vergangi í nokkra daga. Sést hafði til hans víða um Hamborg áður en dýraeftirlitsmenn höfðu uppi á honum við vatnið Binnenalster.
Sérfræðingar telja líklegt að borgarumhverfið hafi valdið dýrinu mikilli ringulreið og streitu. Að mati svæðisyfirvalda er afar erfitt fyrir villt rándýr á borð við úlfa að rata um þéttbýlt borgarsvæði, þar sem hávaði, umferð og glerbyggingar geti ruglað þá í ríminu.
Úlfurinn hefur nú verið fluttur í dýragarð sem sérhæfir sig í villtum dýrum. Konan sem slasaðist var flutt á sjúkrahús þar sem gert var að sárum hennar með saumum, en hún var síðar útskrifuð.