fbpx
Miðvikudagur 15.apríl 2026
Pressan

Áhugarappari fékk 10 ára dóm eftir voveiflegan dauða tengdamóður sinnar

Pressan
Miðvikudaginn 1. apríl 2026 07:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Breski áhugarapparinn Ashley Warren var í gær dæmdur í tíu ára fangelsi fyrir breskum dómstólum eftir að hann var sakfelldur fyrir aðild að dauða tengdamóður sinnar, Esther Martin, á heimili hans í febrúar 2024.

Ashley þessi var eigandi tveggja hunda af tegundinni XL bully á heimili sínu í Essex þegar þeir réðust á Esther sem var 68 ára gömul. Tveimur dögum fyrir árásina hafði þessi hundategund verið bönnuð á Bretlandseyjum.

Auk þess að eiga tvo fullorðna hunda af þessari tegund var hann með átta hvolpa á heimili sínu.

Fyrir dómi kom fram að árásin hafi staðið yfir í að minnsta kosti tólf mínútur. Saksóknarar sögðu fyrir dómi að Ashley hafi vitað að búið væri að banna tegundina, en hann hafi látið eins og hann væri hafinn yfir lög.

Ashley var að taka upp tónlistarmyndband í London þegar tengdamóðir hans lést. Hann var sakfelldur vegna málsins í febrúar en í gær og var endanleg refsing tilkynnt í gær.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Það sem dauðadæmd kona játaði hjá lögreglunni sækir enn á fyrrum lögreglumann

Það sem dauðadæmd kona játaði hjá lögreglunni sækir enn á fyrrum lögreglumann
Pressan
Fyrir 2 dögum

Kúba undirbýr sig undir árás frá Bandaríkjunum – „Ef við þurfum að deyja, þá deyjum við“

Kúba undirbýr sig undir árás frá Bandaríkjunum – „Ef við þurfum að deyja, þá deyjum við“