
Grei, sem er 38 ára, var dagmamma með starfsemi á heimili sínu þegar hinn Nicholas Dominici, drengur í hennar umsjá, komst í snertingu við fentanýl.
Atvikið átti sér stað í september 2023 og komust þrjú önnur börn í snertingu með þeim afleiðingum að þau fengu eitrun.
Saksóknarar sögðu að fentanýl hefði verið unnið í sama rými og börnin dvöldu í og að sömu eldhúsáhöld hefðu verið notuð til að meðhöndla fíkniefnið og útbúa mat fyrir börnin.
Við rannsókn málsins fundu lögreglumenn eitt kíló af fentanýli í skáp á staðnum og um 12 kíló af öðrum fíkniefnum falin í leikherbergi.
Samkvæmt saksóknurum hringdi Mendez í eiginmann sinn áður en neyðarlínan var kölluð til. Hann mun hafa komið á vettvang, fjarlægt fíkniefni og flúið síðar úr landi til Mexíkó. Hann var síðar handtekinn og framseldur til Bandaríkjanna.
Foreldrar Nicholas sögðu fyrir dómi að þau teldu að parið ætti aldrei að sleppa úr fangelsi. Móðir hans lýsti því að læknar hefðu gert allt sem í þeirra valdi stóð til að bjarga lífi hans, en það hefði verið of seint.
Hjónin afplána nú þegar 45 ára fangelsisdóm eftir að hafa játað sök varðandi framleiðslu, vörslu og dreifingu fíkniefna. Nýi dómurinn samkvæmt lögum New York-ríkis verður afplánaður samhliða þeim dómi.