fbpx
Föstudagur 17.apríl 2026
Pressan

Skelfileg atburðarás hófst þegar lögreglumaður stöðvaði hann í umferðareftirliti

Pressan
Fimmtudaginn 5. mars 2026 06:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Billy Leon Kearse, 53 ára fangi á dauðadeild í Flórída, var tekinn af lífi með banvænni sprautu á þriðjudagskvöld.

Billy þessi var dæmdur til dauða fyrir morðið á Danny Parrish, lögreglumanni í Fort Pierce, í janúar árið 1991. Atburðarásin hófst þegar Danny var við umferðareftirlit og varð þess var að bifreið, sem hann gaf merki um að stöðva, var ekið gegn einstefnu.

Þegar Billy gat ekki framvísað gildu ökuskírteini skipaði Danny honum að stíga út úr bifreiðinni og reyndi að setja á hann handjárn. Þá kom til átaka milli þeirra.

Í átökunum náði Billy í skotvopn lögreglumannsins og skaut 14 skotum og hæfðu níu þeirra lögreglumanninn. Leigubílstjóri í nágrenninu heyrði skothvellina og kallaði eftir aðstoð í talstöð lögreglumannsins, en Danny lést síðar á sjúkrahúsi.

Lögregla handtók Billy síðar á heimili hans eftir að hafa notað upplýsingar um númeraplötu bifreiðarinnar sem Danny hafði sent inn í talstöð sína þegar hann stöðvaði hann.

Nokkrum klukkustundum áður en aftakan fór fram hafnaði Hæstiréttur Bandaríkjanna síðustu áfrýjun Billy án frekari skýringa. Í síðustu viku hafnaði Hæstiréttur Flórída einnig áfrýjunum sem lögmenn hans höfðu lagt fram.

Tvær aftökur til viðbótar eru þegar á dagskrá í Flórída á næstu vikum. Michael Lee King verður að óbreyttu tekinn af lífi þann 17. mars næstkomandi fyrir mannrán og morð á tveggja barna móður árið 2008.

Fyrrverandi lögreglumaðurinn James Duckett verður svo tekinn af lífi þann 31. mars fyrir morð á 11 ára stúlku árið 1987.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

„Ég vildi óska þess að við hefðum aldrei opnað búðirnar þetta sumar“

„Ég vildi óska þess að við hefðum aldrei opnað búðirnar þetta sumar“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Kraftaverkabarnið handtekið nærri 40 árum síðar

Kraftaverkabarnið handtekið nærri 40 árum síðar
Pressan
Fyrir 3 dögum

Ísraelsmenn brjálaðir út í Spánverja

Ísraelsmenn brjálaðir út í Spánverja
Pressan
Fyrir 3 dögum

„Djöfullinn er til, hann er innra með mér, og ég borðaði mömmu”

„Djöfullinn er til, hann er innra með mér, og ég borðaði mömmu”
Pressan
Fyrir 4 dögum

Björguðu 9 ára dreng sem hafði verið læstur inni í bíl í eitt og hálft ár

Björguðu 9 ára dreng sem hafði verið læstur inni í bíl í eitt og hálft ár
Pressan
Fyrir 4 dögum

Langur svefn getur leitt til þyngdartaps

Langur svefn getur leitt til þyngdartaps