fbpx
Föstudagur 17.apríl 2026
Pressan

Fyrrum herforingi sem hefur verið tengdur við rannsóknir á fljúgandi furðuhlutum er horfinn

Pressan
Fimmtudaginn 5. mars 2026 17:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bandarísks uppgjafaherforingja, William Neil McCasland, er saknað, en hvarf hans hefur vakið nokkra athygli. McCasland er 68 ára gamall og starfaði sem flugliðsforingi á Wright-Patterson herstöðinni í Ohio áður en hann yfirgef herinn árið 2013.

Yfirvöld í Nýju-Mexíkó hafa nú leitað á náðir almennings og óskað eftir aðstoð við að finna herforingjann sem sást síðast þann 27. febrúar. Samkvæmt tilkynningu glímir McCasland við heilsubrest sem gefur yfirvöldum tilefni til að ætla að hann sé í hættu.

Á Wright-Patterson-herstöðinni var á árum áður rekið verkefni sem kallaðist Project Blue Book en því var ætlað að rannsaka fljúgandi furðuhluti. Verkefnið hófst árið 1952 en því lauk árið 1969. Á þessum tíma voru rúmlega 13 þúsund tilvik tekin til rannsóknar þar sem tilkynnt hafði verið um fljúgandi furðuhluti. Langflest tilvik reyndust eiga sér eðlilegar skýringar en 701 mál fengust þó ekki upplýst.

Nafn McCasland kom fyrir í gagnaleka Wikileaks árið 2016, í tölvupóstum sem skrifstofustjóri Hvíta hússins í valdatíð Bills Clinton Bandaríkjaforseta, John Podesta, sendi til gítarleikara hljómsveitarinnar Blink-182, Tom DeLonge. Þar ræddu þeir um geimverur, fljúgandi furðuhluti og vinsæla samsæriskenningu um að geimskip hafi strandað í Roswell á fimmta áratug síðustu aldar.

DeLonge skrifaði í þessum samskiptum að braki úr fljúgandi furðuhlut hefði verið komið til Wright Patterson-herstöðvarinnar og að McCasland hefði lengi ráðið þar ríkjum.

„Hann veit ekki bara hverju ég er að reyna að áorka heldur hefur hann hjálpað mér að koma saman ráðgjafateymi. Hann er mjög mikilvægur maður.“

McCasland hefur hvorki staðfest né neitað því að hafa aðstoðað DeLonge við að rannsaka fljúgandi furðuhluti.

Að sögn eiginkonu uppgjafahermannsins yfirgaf hann heimili sitt þann 27. febrúar og hafði hvorki með sér vasaúr né síma, en fjölskyldu hans þykir það ólíkt honum enda er hann reyndur útivistarmaður.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

„Ég vildi óska þess að við hefðum aldrei opnað búðirnar þetta sumar“

„Ég vildi óska þess að við hefðum aldrei opnað búðirnar þetta sumar“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Kraftaverkabarnið handtekið nærri 40 árum síðar

Kraftaverkabarnið handtekið nærri 40 árum síðar
Pressan
Fyrir 3 dögum

Ísraelsmenn brjálaðir út í Spánverja

Ísraelsmenn brjálaðir út í Spánverja
Pressan
Fyrir 3 dögum

„Djöfullinn er til, hann er innra með mér, og ég borðaði mömmu”

„Djöfullinn er til, hann er innra með mér, og ég borðaði mömmu”
Pressan
Fyrir 4 dögum

Björguðu 9 ára dreng sem hafði verið læstur inni í bíl í eitt og hálft ár

Björguðu 9 ára dreng sem hafði verið læstur inni í bíl í eitt og hálft ár
Pressan
Fyrir 4 dögum

Langur svefn getur leitt til þyngdartaps

Langur svefn getur leitt til þyngdartaps