fbpx
Laugardagur 18.apríl 2026
Pressan

Bandaríkjamenn gerðu prófanir á óhugnanlegu vopni

Pressan
Fimmtudaginn 5. mars 2026 17:00

Eldlaugin getur ferðast mörg þúsund kílómetra. Mynd: U.S. Space Force/Staff Sgt. Joshua LeRoi

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bandaríski herinn prófaði á þriðjudagskvöld langdræga eldflaug af gerðinni Minuteman III undan ströndum Kaliforníu, samkvæmt upplýsingum frá bandaríska flughernum.

Í frétt New York Post kemur fram að eldflauginni hafi verið skotið á loft frá Vandenberg Space Force Base nálægt Santa Barbara í Kaliforníu. Um var að ræða óvopnaða eldflaug og lenti hún á fyrirfram tilgreindu skotmarki nálægt Marshall-eyjum í vesturhluta Kyrrahafsins.

Samkvæmt Air Force Global Strike Command, sem sér meðal annars um kjarnorkueldflaugar hersins, var tilgangur prófunarinnar að sannreyna virkni, viðbúnað og nákvæmni eldflaugakerfisins.

Eldflaugin sem um ræðir getur borið kjarnorkusprengjur sem eru allt að 20 sinnum öflugri en kjarnorkusprengjan sem varpað var á Hiroshima í síðari heimsstyrjöldinni.

Í frétt New York Post kemur fram að Minuteman III eldflaugarnar séu hluti af svokölluðum kjarnorkuþríhyrningi Bandaríkjanna, sem byggir á getu til að beita kjarnorkuvopnum frá landi, úr lofti og frá sjó. Eldflaugarnar eru geymdar í sílóum víðs vegar um vesturhluta Bandaríkjanna og eru ætlaðar til að tryggja að landið geti svarað mögulegri kjarnorkuárás.

Eldflaug af sömu gerð var einnig prófuð í nóvember á síðasta ári, en þessi tegund getur ferðast allt að 9.600 kílómetra og nær yfir 24 þúsund kílómetra hraða á klukkustund.

Eldflaugin er hönnuð til að bera kjarnorkusprengjur, en í prófunarskotum er hún án sprengjuhleðslu eins og að framan greinir.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 23 klukkutímum

Kviðdómendur grétu við upptöku af síðustu augnablikum sjö ára stúlku

Kviðdómendur grétu við upptöku af síðustu augnablikum sjö ára stúlku
Pressan
Fyrir 23 klukkutímum

Söngvarinn handtekinn vegna rotnandi líks táningsstúlku sem fannst í Teslu-bifreið hans

Söngvarinn handtekinn vegna rotnandi líks táningsstúlku sem fannst í Teslu-bifreið hans
Pressan
Í gær

Draumaferð hjónanna til Maldíveyja breyttist í algjöra martröð

Draumaferð hjónanna til Maldíveyja breyttist í algjöra martröð
Pressan
Fyrir 2 dögum

Bandaríkjamenn sagðir hafna tillögu Rússlands um lausn Íransstríðsins

Bandaríkjamenn sagðir hafna tillögu Rússlands um lausn Íransstríðsins
Pressan
Fyrir 3 dögum

Öldruð móðir veit ekki að sonur hennar er dáinn því hún spjallar reglulega við gervigreindartvífara hans

Öldruð móðir veit ekki að sonur hennar er dáinn því hún spjallar reglulega við gervigreindartvífara hans
Pressan
Fyrir 3 dögum

Trump reyndi að fá DoorDash-sendilinn til að tjá sig um hitamál – Það misheppnaðist hrapallega

Trump reyndi að fá DoorDash-sendilinn til að tjá sig um hitamál – Það misheppnaðist hrapallega
Pressan
Fyrir 3 dögum

Kraftaverkabarnið handtekið nærri 40 árum síðar

Kraftaverkabarnið handtekið nærri 40 árum síðar
Pressan
Fyrir 3 dögum

Nýburi fannst í plastpoka árið 1981 – Áratugum síðar kom sannleikurinn í ljós

Nýburi fannst í plastpoka árið 1981 – Áratugum síðar kom sannleikurinn í ljós