fbpx
Mánudagur 13.apríl 2026
Pressan

TikTok-ásakanir um morð reyndust dýrkeyptar – Dæmd til að greiða yfir milljarð

Pressan
Miðvikudaginn 4. mars 2026 07:00

Ashley Guillard og Rebecca Scofield.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kviðdómur í borginni Boise í Idaho í Bandaríkjunum hefur úrskurðað TikTok-efnishöfundinn Ashley Guillard til að greiða sagnfræðiprófessor við University of Idaho 10 milljónir dala, 1.240 milljónir króna, í bætur vegna ærumeiðandi ummæla.

Málið tengist fjórföldu morði sem framið var í borginni Moscow í Idaho árið 2022. Guillard birti fjölda myndbanda á TikTok þar sem hún hélt því fram, á grundvelli tarotspila og meintra skyggnihæfileika, að prófessorinn, kona að nafni Rebecca Scofield, hefði skipulagt morðin.

Um er að ræða eitt þekktasta morðmál Bandaríkjanna á undanförnum árum, en sem kunnugt er var Bryan Kohberger, doktorsnemi í afbrotafræði, dæmdur í lífstíðarfangelsi vegna morðanna.

Dómarinn í málinu hafði áður komist að þeirri niðurstöðu að ummæli Guillard væru ærumeiðandi og var verkefni kviðdómsins einungis að ákveða fjárhæð bóta. Niðurstaðan var sú að Guillard skyldi greiða 7,5 milljónir dala í refsibætur og 2,5 milljónir dala í miskabætur.

Samkvæmt umfjöllun Idaho Statesman var upphæðin töluvert hærri en lögmenn Scofield höfðu farið fram á.

Í stefnu Scofield kom fram að Guillard hefði, án nokkurra sannana, haldið því fram að hún hefði átt í leynilegu ástarsambandi við eitt fórnarlambanna og „fyrirskipað“ morðin. Guillard var aftur á móti aldrei grunuð um aðild að málinu og voru ásakanirnar byggðar á sandi.

Guillard varði sig sjálf fyrir dómi og hélt því fram að færslur hennar hefðu endurspeglað persónulega trú hennar, lestur á tarotspilum og skyggnigáfu sem hún segist hafa.

Hún hélt áfram birtingum jafnvel eftir að henni bárust formlegar kröfur um að láta af háttsemi sinni. TikTok-aðgangur hennar var með 100.000 fylgjendur og sum myndbönd hennar fengu milljónir viðbragða.

Scofield og Guillard mættust augliti til auglitis í fyrsta sinn við réttarhöldin fyrir skemmstu. Lýsti Scofield því að hún hefði orðið fyrir alvarlegum afleiðingum vegna ásakananna og að málið sýndi að rangar fullyrðingar á netinu gætu haft raunverulegar og kostnaðarsamar afleiðingar. Óljóst er hvort Guillard hyggst áfrýja dómnum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 21 klukkutímum

Aðstoðarkona raðmorðingjans stígur fram – „Ég var vön að segja honum að borða skorpuna“

Aðstoðarkona raðmorðingjans stígur fram – „Ég var vön að segja honum að borða skorpuna“
Pressan
Fyrir 22 klukkutímum

Trump lokar Hormússundi – „Íran mun ekki hagnast af þessari ólöglegu tilraun til FJÁRKÚGUNAR“

Trump lokar Hormússundi – „Íran mun ekki hagnast af þessari ólöglegu tilraun til FJÁRKÚGUNAR“
Pressan
Í gær

Útúrdópaðir rússneskir hermenn – Finna hvorki til ótta né sársauka

Útúrdópaðir rússneskir hermenn – Finna hvorki til ótta né sársauka
Pressan
Fyrir 2 dögum

Svona er hægt að afþíða frystinn á skömmum tíma með álpappír

Svona er hægt að afþíða frystinn á skömmum tíma með álpappír