Ítalskur matreiðslumaður í Ástralíu var rekinn úr starfi eftir að hafa meðal annars neitað að setja ananas á pítsur fyrir viðskiptavini veitingastaðarins þar sem hann starfaði.
Maðurinn taldi slíkt vera móðgun við ítalska menningu og sagðist ekki þurfa að hlýða fyrirmælum yfirmanna sinna ef þau gengju gegn menningarlegum gildum hans.
BBC greinir frá þessu en matreiðslumaðurinn, Davide Tamburella, starfaði á veitingastaðnum La Costa í Brisbane. Honum var sagt upp í maí síðastliðnum eftir að stjórnendur höfðu gert athugasemdir við hegðun hans.
Meðal þess sem fór fyrir brjóstið á stjórnendum var að Tamburella hafði þvertekið fyrir að útbúa pítsur með skinku og ananas fyrir gesti á viðburði.
Samkvæmt úrskurði áströlsku vinnumálanefndarinnar hafði Tamburella þrisvar sinnum á síðustu fjórum árum neitað að setja ananas á pítsur. Hann hafði meira að segja hvatt yfirmann sinn til að kynna sér hversu mikilvægt það væri fyrir Ítali að halda ananas frá pítsum.
Ágreiningurinn um pítsuáleggið var þó ekki eina vandamálið. Stjórnendur höfðu einnig gert athugasemdir við blótsyrði, samskiptahætti og skapofsa matreiðslumannsins.
Í apríl síðastliðnum sló hann svo harkalega í handrið úr málmi á vinnustaðnum að hann braut bein í hægri hendi.
Tamburella kærði uppsögnina til áströlsku vinnumálanefndarinnar en hafði ekki erindi sem erfiði. Kæru hans var hafnað þar sem hún barst of seint, án þess að tekin væri efnisleg afstaða til þess hvort uppsögnin hefði verið réttmæt.
Framkvæmdastjóri veitingastaðarins sagði í samtali við Daily Mail að mun meira lægi að baki málinu en einfaldur ágreiningur um pítsuálegg.
Tamburella hefur nú fengið starf á öðrum veitingastað í Brisbane. BBC kannaði matseðil nýja vinnustaðarins og komst að því að þar er hvergi að finna ananas.