Fimm manns, þar af tvö börn, hafa fundist á lífi á afskekktri eyju í Kyrrahafi eftir að hafa verið saknað í nærri þrjá mánuði. Fólkið hafði lagt af stað í stutta bátsferð en lent í óveðri og horfið sporlaust. Báturinn fannst að lokum um 5.400 kílómetra frá heimahögunum.
ABC í Ástralíu greinir frá þessu.
Hópurinn, sem upphaflega taldi níu manns, lagði af stað þann 30. júlí í siglingu milli eyjanna Murilo og Ruo í Míkrónesíu. Ferðin átti aðeins að taka um klukkustund en óveður skall á og ekkert spurðist til fólksins eftir það.
Bandaríska strandgæslan hóf umfangsmikla leit með aðstoð flugvéla frá bandaríska sjóhernum og flughernum. Leitin stóð yfir í tíu daga áður en henni var hætt 9. ágúst án árangurs.
Það var síðan á sunnudag sem íbúar Fanning-eyju í Kíríbatí komu auga á bátinn á reki undan ströndum eyjunnar. Um borð voru fimm manns, þar á meðal tvö börn, og voru þau öll á lífi.
Íbúar eyjunnar komu fólkinu til bjargar og prestur á staðnum tók það í sína umsjá.
Kaotitaake Rakoroa, þingmaður svæðisins, staðfesti að fólkið hefði fengið læknisaðstoð og lagði til að það yrði flutt til Kiritimati-eyju til frekari rannsókna og meðferðar.
Ekki hefur komið fram hvernig fólkinu tókst að halda lífi svo lengi á sjó eða hvaðan það fékk mat og drykkjarvatn. Það hefur enn ekki tjáð sig opinberlega um hrakningarnar og óskað eftir að friðhelgi þess verði virt.
Þrátt fyrir gleðina yfir björguninni ríkir enn óvissa um afdrif fjögurra einstaklinga sem voru einnig um borð þegar báturinn lagði af stað.