Pressan

Bandaríkjamenn bregðast við vonbrigðum og sigrum næturinnar - „Repúblikanaflokkurinn dó í nótt“

Mynd
Donald J. Trump, forseti Bandaríkjanna

Bandaríkjamenn fjölmenntu í kjörklefana í gærkvöldi og í nótt. Skilaboðin úr kjörkössunum virðast vera þau að tempra þurfi vald forsetans, en allt stefnir í að Demókratar séu nú með meirihluta í bæði fulltrúa- og öldungadeildinni.

Repúblikanar urðu fyrir töluverðum vonbrigðum og í raun má segja að Demókratar hafi orðið hálfhissa enda gekk þeim víða mun betur en flokkurinn hafði þorað að vona.

Fyrstu áföllin komu þegar nokkuð ljóst þótti að Repúblikanar hefðu tapað öldungadeildarsætum í bæði Norður- og Suður-Karólínu.

Kjörstaðir höfðu ekki einu sinni lokað þegar NBC hafði slegið því á föstu að Demókratar hefðu náð góðum meirihluta í fulltrúadeildinni. Næsta áfall kom þegar ljóst þótti að Texas væri að verða blátt, að þar fengju Demókratar bæði ríkisstjórann og öldungadeildarsætið.

Að venju hefur fólk skoðanir á þessum niðurstöðum sem margir hafa viðrað á X. Donald Trump notar heldur sinn eigin miðil, Truth Social, en þar lýsti hann því yfir í nótt að niðurstöðuna megi rekja til þess að nafn hans var ekki á kjörseðlunum.

„Ég var ekki á kjörseðlinum og hefði ég verið það þá hefðum við unnið stórsigur.“

 Færslurnar urðu svo fleiri. Hann sakaði fráfarandi ríkisstjóra Texas um að hafa snúið baki við stefnu Repúblikana, þ.e. að vera aðeins Repúblikani í orði en ekki á borði. Hefði hann ekki gert svo hefði hann unnið. Forsetinn lýsti því svo yfir að hann ætlaði sér að gerast stjórnmálaskýrandi: „bæði um það góða og slæma sem varð til þess að frambjóðendur unnu eða töpuðu.“  Síðan deildi hann mynd af derhúfu sem gefur til kynna að hann ætli sér að nýta neitunarvald embættis síns.  

„Repúblikanaflokkurinn dó í nótt“ 

 

  

 „Sturlað“

  

 

 „Ef þeir tapa Texas..“

 Hvað Texas varðar fóru samsæriskenningar fljótt á kreik. Sárir Repúblikanar töldu ljóst að innflytjendur og vinstrimenn sem hafa flutt til Texas frá Kaliforníu hafi stolið kosningunum. Aðrir töldu að Demókratar gætu ekki eignað sér sigurinn. Flokkurinn hafi notið góðs af atkvæðum þeirra sem eru ósáttir við Donald Trump Bandaríkjaforseta. Áður en tölur fóru að berast voru hægrimenn þó jákvæðir. Vildu þeir meina að veðbankar, sem spáðu Demókrötum sigri, væru með falsaðar niðurstöður og að allt tal um bláa-sveiflu væri ekkert annað en bull.    Hakkarahópurinn Anonymous benti á það í nótt að vissulega væri ekki um bláa öldu að ræða heldur bláa kjarnorkusprengju.   

 

  

Á móti samsæriskenningum var nefnt að hér væri fyrst og fremst um að ræða viðbragð við óvinsælum aðgerðum ríkisstjórnarinnar, á borð við stríði í Írak. 

 

 

 

  

 

 

 Aðrir lýstu því yfir að VÓK-ið væri snúið aftur.

 

 

  

 

Svo voru þeir sem vildu meina að Repúblikanaflokkurinn geti sjálfum sér um kennt. Hann hafi ýtt frá sér kjósendum sem eru nær miðjunni með því að fara út í öfgar. 

„Við vorum einu sinni flokkur rökhyggju, traustra útreikninga, heilbrigðrar skynsemi og talsmenn þess að komast áfram af eigin rammleik. Nú erum við söfnuður persónudýrkunar sem einkennist af jámönnum, hörmulegum frambjóðendum og ákvörðunarfælni. Við berum sjálf ábyrgð á niðurstöðu næturinnar; við, rétt eins og demókratar, höfum leyft okkur að verða þrælar jaðarhópanna sem öskra hæst um allar verstu hugmyndirnar og draga okkur í svaðið.“