Bandaríkjamenn gengu til kosninga í dag og bíða margir með eftirvæntingu eftir niðurstöðunum. Repúblikanaflokkurinn er sem stendur með meirihluta í bæði fulltrúa- og öldungadeild Bandaríkjaþings og vill gjarnan halda því svo.
Hér fyrir neðan er dregin saman helstu tíðindi næturinnar. Við erum samt svo gamaldags hér á Pressunni að lesendur þurfa að „refresha“-síðuna til að sjá uppfærslur.
Kjörstaðir eru nú farnir að loka, en þar sem Bandaríkin eru gríðarlega stór og skiptast í 50 ríki þá loka þeir á mismunandi tíma. Fyrst lokuðu kjörstaðir í Indiana og Kentucky og svo lokar þeim koll af kolli vestur yfir landið.
Þetta hefur áhrif á hvernig tölur berast. Fyrstu tölur koma fljótlega eftir að kjörstaðirnir loka og byggja þá einkum á talningu utankjörfundaatkvæða, en þar eru kjósendur Demókrataflokksins gjarnan virkari en kjósendur Repúblikanaflokksins.
Veðmálafyrirtæki hafa spáð því að demókratar nái meirihluta í fulltrúadeildinni en óvíst er hvernig fer með öldungadeildina. Kalshi og Polymarket hafa veðjað á demókrata en fyrirtækin reyndust sannspá árið 2024 þegar þau spáðu Donald Trump sigri í forsetakosningunum. En veðmál eru bara spá og því getur allt gerst.
Tugir milljóna hafa kosið í kosningunum og er því reiknað með að talningu verði ekki lokið fyrr en að nokkrum dögum liðnum. Mest er spennan eftir niðurstöðum frá Georgíu, Michigan, Texas, Alaska, Iowa, New Hampshire, Maine, Norður-Karólínu, Ohio og Kansas, en þetta eru talin vera ríkin sem munu skera út um það hvort repúblikanar haldi öldungadeildinni.
Hvert ríki skiptist í kjördæmi sem svo skiptast niður í sýslur. Það væri hvorki skemmtilegt fyrir blaðamann né lesanda að fara ítarlega yfir tölurnar. Verður því stiklað á mjög stóru. Helst heyrir það til tíðinda þegar stóru fjölmiðlarnir telja óhætt að lýsa sigurvegara, byggt á útgönguspám, fyrstu tölum og fleiru. Þar reið NBC á vaðið þegar miðillinn lýsti því yfir að demókratar haldi sæti sínu í öldungadeildinni í Georgíu með sigri þingmannsins Jon Ossoff.
Vaktin
05:58: Staðan í Mississippi er æsispennandi en þar eru frambjóðendur flokkanna tveggja hnífjafnir, með 48,9% hvor, en það munar aðeins 28 atkvæðum þegar 96,5% hafa verið talin.
05:51: Nú þykir ljóst að Demókratar náðu öldunga- og fulltrúadeildinni, en því halda allir stærstu miðlarnir fram, þar á meðal Fox-fréttastofan sem segir Repúblikana hafa tapað 7 öldungadeildasætum til Demókrata. Þar með séu Demókratar komnir með 53 manna meirihluta.
05:27: Repúlíkanar eru taldir hafa misst embætti ríkisstjóra til Demókrata í Texas, Georgíu, Iowa og Ohio.
04:55: Donald Trump hlakkar til að vinna með Demókrötum og ætlar að sætta sig við niðurstöðu næturinnar. Þetta kom fram í samtali hans við The New York Times.
Þetta er ekki bara sögulegur dagur fyrir Demókrata. Repúblikaninn Byron Donalds verður fyrsti svarti ríkisstjóri Flórída.
04:25: Hlutirnir gerast hratt. NBC hefur nú spáð því að öldungardeildarsætið í Iowa fari til Demókrata, en gangi spá miðilsins eftir er flokkurinn þar með kominn með meirihluta í öldungadeildinni.
04:23: Nú er talið að Repúblikanar hafi tapað öldungadeildarsætum sínu í Ohio og Kansas en þá hefur flokkurinn misst fimm sæti í hendur Demókrata í nótt. Samkvæmt spá NBC eru Demókrötar aðeins einu sæti frá meirihluta. Mögulega verður það Iowa sem gerir útspilið en þar er frambjóðandi Demókrata með 51% sem stendur eftir að 88% atkvæða hafa verið talin.
04:08: Ríkisstjóri Texas, Greg Abbott, hefur viðurkennt ósigur gegn Demókratanum Gina Hinojosa.
Donald Trump Bandaríkjaforseti segir að hefði nafn hans verið á kjörseðlunum hefði niðurstaða næturinnar orðið önnur.
- 03:50: Nú er talið að Demókratar hafi náð öldungardeildarsætinu í Texas, en þegar um 63% atkvæða höfðu verið talin var James Talarico með 59,4% atkvæða. Flokkurinn þarf fjögur sæti í viðbót til að ná meirihluta í öldungardeildinni.
- 03:10: NBC hefur nú lýst því yfir að Demókratar hafi náð meirihluta í fulltrúadeildinni, jafnvel þó að kjörstaðir í sumum ríkjum séu enn opnir. Að mati miðilsins munu kjörkassarnir skila Demókrötum 255 sætum í heildina, en aðeins þarf 218 fyrir meirihluta.
- Það er margt sögulegt að eiga sér stað í bandarískum stjórnmálum í nótt. Keisha Lance Bottoms verður ríkisstjóri Georgíu og verður þar sem fyrsta svarta konan til að sem er kjörin í slíkt embætti. Hún verður eins fyrst kvenna til að gegna stöðunni í Georgíu.
- Chris Pappas fagnar nú sigri í New Hampshire en talið er öruggt að Demókratinn sé á leiðinni í öldungadeildina. Hann verður þar með fyrsti homminn í öldungadeildinni, að minnsta kosti sá fyrsti sem er kominn út úr skápnum.
- 02:58: NBC og CNN hafa nú spáð því að Demókratar hafi náð að stela öldungardeildarsæti í Suður-Karólínu. Seinast var flokkurinn með öldungardeildarþingmann frá Suður-Karólinu árið 2004 þegar Fritz Hollings lét af embætti.
- 02:55: Rebúblikanar halda öldungadeildasætum sínum í Kentucky, Tennesee og Oklahoma, skv. spá NBC sem spáir því jafnframt að Demókratar hafi tryggt sér 111 sæti í fulltrúadeildinni en Rebúlikanar 57.
- Klukkan 02:30 í nótt var ekki að sjá að veðbankarnir Kalshi og Polymarket hefðu mikla trú á að Repúblikanar haldi meirihluta sínum í fulltrúa- og öldungadeild. Kalshi telur 99,6 prósent líkur á að Demókratar taki fulltrúadeildina og 99,2 prósent að þeir taki öldungadeildina líka. Polymarket segir 100 prósent líkur á að Demókratar tali fulltrúadeildina og 99% að þeir taki öldungadeildina. Það sem meira er spá veðbankarnir að Demókratar nái öldungadeildasætinu í Texas, líkurnar hjá Polymarket eru 99% fyrir Demókratan James Talarico. Eins er því spáð að Demókratinn Gina Hinojosa verði ríkisstjóri Texas, en demókrati var seinast kjörinn ríkisstjóri þar árið 1990. Seinasti Demókratinn sem sat í öldungadeildinni fyrir Texas var Bob Krueger árið 1993.
- Öldungadeildin aftur - Demókratar halda Colorado og Nýju Mexíkó. Repúblikanar halda Wyoming.
- Ef þið hélduð að blaðamaður væri að gleyma fulltrúadeildinni. Þá höfðuð þið rétt fyrir ykkur. Þar eru demókratar komnir með 80 sæti og repúblikanar 33, að mati NBC. Fox-fréttastofan er íhaldsamari í sinni spá og segir 69 sæti til D og 30 til R. Einu sætinu hafa demókratar stolið af repúblikönum en það var í 11. kjördæmi Norður-Karólinu. Til að ná meirihluta þarf 218 sæti.
- NBC fréttastofan hefur það eftir heimildarmönnum frá Repúblikönum að þar séu menn skjálfandi á beinunum yfir stöðunni í Suður-Karólínu. Þetta hefur verið öruggt vígi fyrir flokkinn en nú þegar 75% atkvæða í öldungadeildarkosningunni hafa verið talin er frambjóðandi demókrata yfir, með 52,4 prósent. Mun þetta hafa komið báðum flokkum a óvart.
- Repúblikanar halda öldungadeildarsæti sínu í Flórída. Það munaði þó litlu en þegar rúmega 90% atkvæða hafa verið talin er frambjóðandi flokksins með 50,7%. Flokkurinn heldur eins sæti sínu í Vestur-Virginíu að mati fjölmiðla.
- Til þessa hefur NBC lýst yfir sigri demókrata í ríkjum þar sem þeir voru þegar með sæti í öldungardeildinni en nú heyrir til tíðinda. Miðillinn hefur nú lýst því yfir að frambjóðandi demókrata, Roy Cooper, hafi sigrað í Norður-Karólínu, en sætið tilheyrði áður repúblikananum Thom Tillis. Fréttastofur AP og Fox spá sömu niðurstöðu.
- Demókratinn Juliana Stratton sigrar öldungardeildarsæti í Illinois að mati AP-fréttastofunnar og NBC. NBC hefur eins lýst yfir sigri frambjóðenda demókrata í New Hampshire, Massachusetts, Rhode Island, Delaware og New Jersey.
- Donald Trump virðist ekki vera í sérstaklega góðu skapi miðað við færslur hans á Truth Social. Hann úthúðar Fox-fréttastofunni sem hann segir eyða alltof miklum tíma í að fjalla um sturlaða demókrata.
- NBC hefur lýst því yfir að sitjandi öldungadeildarþingmaður demókrata, Mark Warner, haldi sæti sínu í Virginíu.
- Hamilton í Indiana hefur talið um helming atkvæða og þar hefur frambjóðandi demókrata til fulltrúadeildarinnar hlotið 63,6 prósent atkvæða, en þar fóru 52,1% atkvæða til Donald Trump í forsetakosningunum 2024. Sérfræðingar CNN benda þó á að það sé óskynsamlegt að lesa of mikið í fyrstu tölurnar þar sem því var spáð árið 2024 að forsetaframbjóðandinn Kamala Harris myndi sigra Hamilton. Hamilton tilheyrir 5. kjördæmi Indiana en Will Cain hjá Fox-fréttastofunni telur að ef nóttin verður söguleg fyrir demókrata þá muni það allt byrja þar. Demókratar voru klukkan 01:30 með 59,9 prósent atkvæða í kjördæminu.
Fyrstu tölurnar frá Flórída þóttu jákvæðar fyrir demókrata en nóttin er enn ung og fyrstu tölur eru, eins og áður segir, litaðar af utankjörfundaratkvæðum. Kjördæmahagræðing átti sér stað í Flórída í aðdraganda kosninganna sem repúblikanar vonuðu að myndi tryggja þeim góða niðurstöðu.
Stærstu bandarísku fjölmiðlarnir hafa tekið púlsinn á kjósendum í dag og eru á einu máli um að efnahagurinn sé á kjörseðlunum. Kjósendur hafa miklar áhyggjur af verðhækkunum, verðbólgu, húsnæðismarkaðnum, spillingu og stríðinu í Íran.
Angie Nixon sem hefur boðið sig fram til öldungadeildar fyrir demókrata í Flórída þykir koma betur út í fyrstu tölum heldur en reiknað var með. Enn og aftur er nóttin þó ung.
Hér fyrir neðan má fylgjast með umfjöllun bandarískra miðla um talninguna í beinni útsendingu: