Pressan

Nýtt kerfi á að koma í veg fyrir að alvarleg veikindi barna fari fram hjá læknum

Mynd
Mynd/Pexels

Breska heilbrigðisþjónustan (NHS) er að innleiða nýtt viðvörunarkerfi á bráðamóttökum víðs vegar um England sem ætlað er að greina fyrr þegar heilsufari veikra barna hrakar. Kerfið verður það umfangsmesta sinnar tegundar í heiminum og á að auðvelda heilbrigðisstarfsfólki að bregðast við áður en ástand barna verður alvarlegt.

Breska dagblaðið The Guardian greinir frá þessu.

Kerfið nefnist National Paediatric Early Warning System (PEWS) og byggir á nokkrum þáttum. Meðal þess sem er metið eru hjartsláttur, blóðþrýstingur, öndunartíðni, súrefnismettun í blóði og meðvitundarástand.

Kerfið er þegar notað við eftirlit með börnum sem liggja inni á sjúkrahúsum, en í vetur verður það í fyrsta sinn tekið í notkun á bráðamóttökum um allt England.

Hver mínúta getur skipt máli

Markmiðið er að auðvelda læknum og hjúkrunarfræðingum að greina viðvörunarmerki um versnandi heilsufar og tryggja að börn sem þurfa bráða aðstoð fái hana eins fljótt og auðið er.

Kerfið tekur mið af aldri barnsins, enda eru eðlileg lífsmörk ólík hjá ungbörnum, eldri börnum og ungmennum. Há stig geta gefið til kynna að ástand barns sé að versna og að þörf sé á frekara mati eða aukinni læknisaðstoð.

Duncan Burton, yfirhjúkrunarfræðingur Englands, segir mikilvægt að starfsfólk á annasömum bráðamóttökum geti áttað sig hratt á því þegar heilsu barna hrakar.

„Þessi samræmda nálgun mun hjálpa starfsfólki að þekkja viðvörunarmerkin, koma áhyggjum sínum á framfæri og taka tímanlegar ákvarðanir þegar hver sekúnda skiptir máli,“ segir Burton.

Hann leggur jafnframt áherslu á að hlustað verði á foreldra og umönnunaraðila sem telja að eitthvað sé að, jafnvel þótt mælingar gefi ekki til kynna alvarlegt ástand.

NHS tekur sérstaklega fram að kerfinu sé ekki ætlað að koma í stað faglegs mats heilbrigðisstarfsfólks. Áhyggjur foreldra eða barnsins sjálfs geti áfram kallað á tafarlaus viðbrögð, óháð niðurstöðu matsins.

Sex milljónir barna leita árlega á bráðamóttökur

Á hverju ári leita meira en sex milljónir barna á bráðamóttökur í Englandi

Mike McKean, fulltrúi Konunglega breska barnalæknafélagsins, sem tók þátt í þróun kerfisins, fagnar innleiðingunni og segir hana sérstaklega mikilvæga nú þegar annasamasti tími ársins á sjúkrahúsum fer í hönd.

Hann segir kerfið mikilvægt hjálpartæki fyrir barnalækna og annað heilbrigðisstarfsfólk til að greina versnandi ástand barna tímanlega.

Samhliða innleiðingunni vinnur NHS að nýjum reglum um þjónustu við börn á bráðamóttökum. Þar er meðal annars lögð áhersla á að koma í veg fyrir að börn þurfi að fá meðferð á göngum sjúkrahúsa vegna plássleysis.