Fyrrum kærasta fyrrverandi nemanda í einum þekktasta herskóla heims hefur stefnt honum fyrir að hafa byrlað henni og neytt ofan í hana lyf sem urðu til þess að hún missti fóstur. Maðurinn bíður einnig dóms fyrir þetta sama athæfi.
NBC og fleiri bandarískir fjölmiðlar greina frá málinu.
Maðurinn heitir Caleb Suh og var nemandi við herskólann sem í daglegu tali er kallaður West Point og er staðsettur í New York ríki í Bandaríkjunum. Skólinn er yfirleitt alltaf nefndur þessu nafni en svæðið, sem raunar er herstöð, sem skólinn er á heitir þessu sama nafni. Skólinn sjálfur heitir hins vegar United States Military Academy og helsta hlutverk hans er að mennta og þjálfa tilvonandi herforingja í bandaríska landhernum (e. Army).
Suh hefur viðurkennt að hafa, þegar hann var nemandi við West Point, árið 2022, byrlað þáverandi kærustu sinni, sem þá var ólétt, lyf sem framkallaði fósturlát. Með játningunni viðurkennir hann að hafa framið líkamsárás sem hafði í för með sér alvarlegan líkamlegan skaða og mun hann hljóta fyrir það dóm sem á eftir að kveða upp.
Ekki kemur fram í frétt NBC hvort Suh var rekinn úr West Point eða kláraði námið en hann stundar nú framhaldsnám við Columbia-háskóla í New York borg og mun dómur yfir honum verða kveðinn upp þar, í janúar.
Lyfin
Fyrrum kærasta hans hefur hins vegar stefnt honum. Hún var einnig nemandi við West Point þegar samband þeirra hófst. Hún var á fyrsta ári, hann á öðru. Konan varð ólétt eftir Suh en hann krafðist þess að hún færi í þungunarrof sem hún neitaði að gera. Kemur fram í stefnunni að hann hafi hótað sjálfsvígi ef hún myndi ekki verða við þessu.
Suh greip þá til þess ráðs að þykjast vera kærasta sín til að fá lyf frá apóteki sem afgreiðir lyf í gegnum netið. Þar á meðal var kvíðalyfið Xanax sem hann blandaði í próteinhristing sem hann neyddi hana til að drekka undir þeim formerkjum að þetta væri sérstaklega ætlað ófrískum konum.
Kærustu Suh varð fljótlega ómótt og meðvitund hennar skertist. Hann neyddi þá ofan í hana þungunarrofslyf en ekki bara munnlega heldur einnig í gegnum leggöngin. Hún rankaði loks við sér og fann þá fyrir miklum sársauka auk þess sem að blæddi úr leggöngunum. Hún var flutt á spítala og þar kom í ljós að Suh hafði tekist ætlunarverk sitt.
Í stefnunni segir að konan krefji Suh um bætur vegna líkamlegra og andlegra þjáninga, fjárhagslegs tjóns, þeirrar auðmýkingar sem hún hafi orðið fyrir og þess að hann hafi eyðilagt þann starfsferil í hernum sem hún hafi stefnt að.
Krefst hún þess einnig að viðurkennt verði að hún sé þolandi árásar.