Pressan

Úðaði á illa lyktandi fót flugfarþega - „Áður en þú skammar mig…Hvað hefðir þú gert?“

Mynd

Kántrísöngkonan Jessie James Decker vakti umræðu á samfélagsmiðlum eftir að hafa birt myndband af sér þar sem hún huldi nef sitt þegar farþegi fyrir aftan hana í flugi hvíldi berfættan fót sinn á armpúða hennar. 

„Fótur einhvers í flugvélinni lyktar svo illa,“ stóð í textanum fyrir ofan myndbandið. Decker tók sig svo til og spreyjaði á fótinn.

Mynd

Decker hafði eina spurningu fyrir 4,4 milljónir fylgjenda sinna á Instagram.

„Áður en þú skammar mig… Hvað hefðir þú gert?“ skrifaði hún við færsluna.

Flestir höfðu enga samúð með þeim sem átti táfýlufótinn.

„Frekjan  í sumum!“ sagði einn notandi. „Ég myndi gera nákvæmlega það sama og þú gerðir!!! Spreyja á illa lyktandi fótinn!!!“ sagði annar. Sá þriðji: „Það hefði átt að fylgja farþeganum út úr flugvélinni.“

Mynd

Fyrrverandi flugfreyja gagnrýndi einnig farþega sem meðhöndla armpúða í flugvélum eins og fótskemil

„Sem fyrrverandi flugfreyja, þegar ég sá fólk setja fæturna á armpúðana, sagði ég þeim strax að þetta er ekki heimili þeirra. Virðið flugvélina og fólkið í kringum ykkur. Þetta er svo ógeðslega ógeðslegt. Ég hefði slegið fótinn á honum með olnboganum.“

Mynd

Nokkrir veltu fyrir sér hvort Decker hefði í raun úðað á ókunnugan mann eða hvort fóturinn tilheyrði eiginmanni hennar, Eric Decker, fyrrverandi NFL leikmanni.

„Vinsamlegast segið mér að þetta sé fóturinn hans Eric en ekki fótur einhverrar handahófskenndrar manneskju!“ skrifaði einn í athugasemd. „Ég geri ráð fyrir að þetta sé fóturinn á Eric? Þú ert alltof góð til að gera þetta við ókunnugan mann ...“ velti annar fyrir sér.

Einn fylgjandi var sannfærður um að myndskeiðið hefði verið grín milli hjónanna og skrifaði: „Þú ert að vera kjánaleg, ekki satt? Það er eiginmaðurinn þinn á bak við þig.“

Mynd

Aðrir höfðu sínar eigin hugmyndir um hvernig á að takast á við óþekkan fót í farþegarýminu.

„Kitla kitla!“ lagði einn notandi til. „Ég hefði dregið fram penna og byrjað að teikna,“ grínaðist annar. „Þú hefðir átt að láta eins og þú værir að hnerra og úða svo á fótinn á honum,“ lagði þriðji til.