Alríkisdómari hefur nú vísað frá kæru á hendur fyrrum starfsmönnum alríkislögreglunnar FBI sem voru sakaðir um að hafa logið á Bandaríkjafundi um rannsóknina gegn Hunter Biden, sem er sonur Joe Biden fyrrverandi Bandaríkjaforseta.
Dómarinn í málinu, Zia Faruqui, taldi ríkisstjórnina ekki hafa fært næg rök fyrir þeim ásökunum um að Nikki Floris og Bradley Benavides hefðu logið að þingmönnum um vitneskju sína um rannsókn á fartölvu Hunter Bidens.
FBI-fulltrúi lýsti því yfir við fyrirtöku í málinu í síðustu viku að hann óttist að kæran í málinu sé af pólitískum toga og hafi yfirmaður FBI, Kash Patel, staðið á bak við hana. Eins sagði fulltrúinn að saksóknari í málinu hefði viðurkennt í símtali að kæran væri ófullkomin.
Þó að málinu hafi verið vísað frá er mögulegt að því verði haldið til streitu ef dómsmálaráðuneytið leggur það fyrir ákærukviðdóm. Það telst þó ólíklegt í ljósi þess að Faruqui hefur nú komist að þeirri niðurstöðu að kæran uppfylli ekki kröfur sakamálalaga.
Dómsmálaráðuneytið segist í yfirlýsingu vera ósammála dómaranum og að frávísunin beri með sér að háttsettir embættismenn ríkisstjórnarinnar njóti friðhelgi gagnvart því að vera gerðir ábyrgir fyrir fölskum yfirlýsingum frammi fyrir þingheimi.
„Við erum að meta alla möguleika en getum ekki tjáð okkur frekar um yfirstandandi sakamálarannsókn. Ráðuneytið mun áfram byggja aðgerðir sínar á staðreyndum, sönnunargögnum og lögum – en ekki pólitík.“
Faruqui hafði áður gagnrýnt ríkisstjórnina fyrir að freista þess að bæta við ákæruliðum í kærunni gegn FBI-fulltrúunum með því að bæta óundirrituðu skjali í gögn málsins án þess að hafa borið það undir dómara.
Sakborningarnir í málinu hafa verið harðlega gagnrýndir af bandamönnum Donald Trump Bandaríkjaforseta en báðir rannsökuðu meinta öryggisbresti í tengslum við forsetakosningarnar árið 2020 sem Trump heldur því fram að hafi verið svindlað í.
Lögmenn annars þeirra segja í yfirlýsingu að skjólstæðingur þeirra hefði aldrei átt að þurfa að sæta slíkum opinberum árásum og vonast þeir að dómstólar haldi áfram að vera skjól fyrir borgara sem orðið hafa fyrir ósanngjörnum árásum ríkisstjórnar Trumps. Kæran í málinu sé ekkert annað en pólitísk ófrægingarherferð sem hafi verið ætlað að afla ríkisstjórninni fylgis í aðdraganda miðkjörtímabilskosninganna.
Dómarinn lýsti svipaðri skoðun í dag þegar málinu var vísað frá. Þar hafi dómsmálaráðuneytinu verið beitt sem vopni í aðdraganda kosninga. Rannsókn málsins hafi verið verulega ábótavant og einkennst af alvarlegum misbrestum.
„Ég hef miklar áhyggjur af því sem hefur átt sér stað í þessu máli,“ sagði dómarinn. „Það sem hér hefur átt sér stað er ekki hægt að kalla annað en vopnvæðingu.“