Pressan

Hún þakkaði ekki fyrir sig - Það endaði með ólýsanlegum hryllingi

Mynd
Keona Hampton, sem þakkaði ekki fyrir sig, framdi hið óskiljanlega ódæði á bílastæði gæludýraverslunar. Mynd: Skjáskot/Youtube.

Kona hefur verið dæmd í 30 ára fangelsi í Dallas í Bandaríkjunum fyrir að verða annarri konu að bana. Hafði hin látna gert athugasemd við að hin konan þakkaði henni ekki fyrir að halda hurð opinni fyrir hana. Kom til harðra orðaskipta milli kvennanna tveggja sem enduðu á þennan illskiljanlega hátt.

Í fréttum Dallas Morning News kemur fram að atvikið hafi átt sér stað í október á síðasta ári. Keona Hampton sem þá var 23 ára var á leið út úr verslun. Rétt á undan henni, á leiðinni út var hin 41 árs gamla Cecilia Simpson, sem hafði verið í versluninni ásamt dóttur sinni. Simpson opnaði dyr verslunarinnar og hélt þeim opnum fyrir Hampton. Sú síðarnefnda þakkaði hins vegar ekki fyrir sig og við það var Simpson ósátt og gerði athugasemd við Hampton. Upphófst í kjölfarið rifrildi á milli þeirra.

Mynd
Cecilia Simpson. Mynd: Skjáskot/Youtube.

Simpson og dóttir hennar keyrðu síðan að nálægri gæludýrabúð en Hampton elti þær á sínum bíl. Þær fóru inn í verslunina og sögðu starfsfólki að verið væri að elta þær. Hampton kom skömmu síðar inn í verslunina og hélt þá rifrildið áfram . Voru konurnar allar á endanum beðnar um að yfirgefa verslunina.

Skot

Simpson og dóttir hennar settust þá upp í bíl sinn og óku af stað en Hampton henti flösku í bílinn. Simpson sté út og eftir áframhaldandi orðaskipti upphófust átök milli hennar og Hampton. Dóttir Simpson reyndi að stöðva slagsmálin en Hampton dró þá upp skammbyssu, skaut Simpson þremur skotum og flúði síðan af vettvangi.

Simpson var flutt á sjúkrahús þar sem hún lést af sárum sínum.

Lögreglan var hins vegar fljót að finna Hampton, eftir að hafa skoðað upptökur úr öryggismyndavélum en hún var handtekin síðar þennan sama dag.

Hampton hefur verið í fangelsi síðan en hún gerði samkomulag við saksóknara um að játa gegn því að fá 30 ára fangelsisdóm, en það ár sem hún hefur þegar setið inni dregst frá dómnum.

Nokkrum dögum eftir morðið ræddi fjölskylda Simpson við fjölmiðla um atburðinn sem verður að teljast nánast óskiljanlegur. Móðir hennar sagði:

„Þetta er eins og slæmur draumur sem ég get aldrei vaknað af.“

„Hún tók hana frá okkur af ástæðulausu.“