Pressan

Græddi milljarða á mataraðstoð til barna – Nú bíða hans 30 ár á bak við lás og slá

Mynd
Salim Said fékk 30 ára fangelsisdóm.

Karlmaður í Minnesota í Bandaríkjunum hefur verið dæmdur í 30 ára fangelsi fyrir aðild að umfangsmiklum fjársvikum þar sem milljarðar króna voru sviknir út úr bandaríska ríkinu undir því yfirskini að verið væri að útvega fátækum börnum mat á tímum kórónuveirufaraldursins.

Maðurinn, Salim Said, rak veitingastaðinn Safari Restaurant í Minneapolis, sem sérhæfði sig í sómalskri matargerð. Hann hélt því meðal annars fram að veitingastaðurinn dreifði 6.000 máltíðum á dag til barna í neyð. Eftirlitsmyndavélar bandarísku alríkislögreglunnar, FBI, sýndu hins vegar að aðeins um 40 manns komu daglega til að sækja mat á staðnum.

Fréttastofan AP greinir frá málinu.

Keypti sér lúxushús og dýran pallbíl

Samkvæmt bandarískum saksóknurum bar Said ábyrgð á fjársvikum upp á samtals 44 milljónir dollara, jafnvirði um 5,5 milljarða íslenskra króna. Hluti fjársvikanna var framinn af einstaklingum sem hann hafði fengið til liðs við sig.

Saksóknarar sögðu Said hafa lagt fram þúsundir falskra greiðslukrafna á 21 mánaðar tímabili. Í kröfunum var því haldið fram að matur hefði verið afhentur börnum úr efnaminni fjölskyldum, en samkvæmt saksóknurum voru börnin sem skráð voru á kröfurnar uppspuni.

„Ákærði og starfseiningar hans gáfu ekki þúsundum barna að borða. Hann bauð upp á úthugsaða og ábatasama lygi,“ sögðu saksóknarar.

Said auðgaðist verulega á starfseminni og keypti meðal annars hús fyrir 1,2 milljónir dollara, atvinnuhúsnæði og pallbíl sem kostaði 87 þúsund dollara.

Neitaði í fyrstu en játaði svo

Við réttarhöldin árið 2025 neitaði Said sök og hélt því fram að stór hluti máltíðanna hefði verið afhentur utan veitingastaðarins. Við dómsuppkvaðninguna á miðvikudag breytti hann hins vegar um afstöðu og lýsti yfir iðrun.

Fjársvik Said voru hluti af umfangsmikilli svikastarfsemi sem tengdist samtökunum Feeding Our Future í Minnesota.

Samtökin höfðu milligöngu um mataraðstoð til barna á tímum kórónuveirufaraldursins, en stjórnandi þeirra, Aimee Bock, skipulagði kerfi þar sem Said og fleiri einstaklingar sviku út háar fjárhæðir með því að krefjast greiðslna fyrir máltíðir sem aldrei höfðu verið afhentar.

Bock hefur verið dæmd í 42 ára fangelsi og gert að endurgreiða 242 milljónir dollara. Tugir einstaklinga hafa verið sakfelldir í tengslum við málið.

Fjársvikin hafa einnig haft pólitískar afleiðingar. Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur ítrekað gagnrýnt Tim Walz, ríkisstjóra Minnesota, fyrir að hafa ekki komið í veg fyrir svikin og meðal annars vísað til þeirra til að réttlæta harðar aðgerðir gegn innflytjendum í ríkinu.

Walz tilkynnti í janúar að hann hygðist ekki sækjast eftir endurkjöri.