Antoine de Massy, 29 ára frændi Alberts fursta af Mónakó, fannst látinn í almenningsgarði í furstadæminu á sunnudag eftir að hafa farið á næturklúbb.
Rannsókn bendir til þess að hann hafi fallið úr umtalsverðri hæð og hefur 42 ára úkraínskur karlmaður verið ákærður í tengslum við dauða hans.
Bandaríska dagblaðið New York Post greinir frá málinu.
Lík de Massy fannst við Boulevard du Larvotto í einu af glæsilegri hverfum Mónakó eftir að fjölskylda hans hafði tilkynnt hvarf hans til lögreglu.
Samkvæmt franska dagblaðinu Le Parisien sást de Massy yfirgefa næturklúbb skömmu áður en hann lést. Hann var sagður óstöðugur á fótum og studdist við annan mann þegar hann gekk út af staðnum.
Krufning leiddi í ljós að de Massy lést að öllum líkindum eftir fall úr 13 metra hæð. Stéphane Thibault, ríkissaksóknari Mónakó, greindi AFP-fréttastofunni frá þessu á miðvikudag.
42 ára úkraínskur ríkisborgari, sem hefur búið í Mónakó undanfarin 30 ár, var handtekinn og ákærður á miðvikudag fyrir manndráp af gáleysi og fyrir að hafa ekki komið manni í lífshættu til aðstoðar.
Maðurinn, sem hefur ekki verið nafngreindur, neitaði sök við yfirheyrslur lögreglu. Þegar hann var leiddur fyrir rannsóknardómara neitaði hann hins vegar að svara spurningum og var í kjölfarið úrskurðaður í gæsluvarðhald.
Rannsókn málsins beinist nú meðal annars að því að varpa ljósi á nákvæma atburðarásina sem leiddi til fallsins. Enn liggur ekki fyrir með hvaða hætti de Massy féll eða hvað gerðist síðustu andartökin í lífi hans.
Antoine de Massy var sonur Christians de Massy baróns, sem er systkinabarn Alberts fursta. Amma hans var Antoinette prinsessa, eldri systir Rainiers III fursta, föður Alberts.
Albert fursti og eiginkona hans, Charlène prinsessa, sendu frá sér yfirlýsingu á mánudag þar sem þau lýstu yfir djúpri sorg vegna andlátsins og vottuðu fjölskyldu hans samúð sína.