Jean Kaseya, framkvæmdastjóri Sóttvarnastofnunar Afríku (Africa CDC), hefur varað við því að mannskæður ebólufaraldur, sem hefur kostað nærri fimm þúsund manns lífið, geti breiðst út til Evrópu.
Kaseya segir útbreiðslu faraldursins fordæmalausa og hvetur ríki heims til að efla viðbúnað sinn áður en það verður um seinan. Frá þessu greinir Daily Mail.
Faraldurinn hófst í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó fyrr á þessu ári og hafa nú yfir tíu þúsund smit verið skráð. Hann hefur einnig náð til annarra Afríkuríkja og smit hafa greinst utan álfunnar.
„Við viljum að öll ríki geri sér grein fyrir því að þau eru ekki örugg nema þau grípi til viðeigandi ráðstafana,“ segir Kaseya.
Hann segir að ríki í öllum heimsálfum verði að auka viðbúnað sinn og getu til að veita smituðum meðferð.
Óttast að sagan endurtaki sig
Kaseya líkir stöðunni við upphaf kórónuveirufaraldursins þegar mörg ríki töldu litlar líkur á að veiran myndi ná til þeirra.
„Við viljum ekki sjá Bretland og önnur ríki verða að miðstöðvum faraldursins,“ segir hann.
Sérfræðingar sem Daily Mail ræddi við segja ástæðu til að taka viðvaranirnar alvarlega, en leggja jafnframt áherslu á að litlar líkur séu á umfangsmikilli útbreiðslu ebólu í Bretlandi.
Charlotte Houldcroft, sérfræðingur í veiruerfðafræði við Cambridge-háskóla, bendir á að smitaðir einstaklingar geti ferðast milli landa án þess að vita af sýkingunni.
Meðgöngutími ebólu sé yfirleitt átta til tíu dagar en geti verið allt að 21 dagur. Það þýði að ferðalangar geti snúið heim frá sýktum svæðum og veikst fyrst nokkrum vikum síðar.
Paul Hunter, prófessor í læknisfræði við University of East Anglia, segir þó að ebóla smitist ekki jafn auðveldlega og margir aðrir veirusjúkdómar. Yfirleitt þurfi nána snertingu við smitaðan einstakling eða líkamsvessa hans.
Hann telur því afar ólíklegt að Bretland verði að stórri miðstöð faraldursins.
Nær helmingur smitaðra hefur látist
Faraldurinn er af völdum sjaldgæfs afbrigðis ebóluveirunnar sem nefnist Bundibugyo.
Samkvæmt upplýsingum Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar höfðu 9.704 smit verið staðfest í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó þann 20. október og 4.687 látist. Það jafngildir rúmlega 48 prósenta dánarhlutfalli meðal staðfestra tilfella.
Faraldurinn er sá stærsti sem komið hefur upp í landinu og sá næststærsti sem skráður hefur verið í heiminum.
Ekkert samþykkt bóluefni er enn til gegn Bundibugyo-afbrigðinu en vísindamenn vinna að þróun slíks bóluefnis. Vonir standa til að niðurstöður úr rannsóknum liggi fyrir á næstu þremur til sex mánuðum.
Ebóla smitast meðal annars við beina snertingu við blóð og aðra líkamsvessa sýktra einstaklinga. Fyrstu einkenni líkjast oft inflúensu, með hita, höfuðverk og vöðvaverkjum, en sjúkdómurinn getur síðar valdið alvarlegum blæðingum og líffærabilun.
Þrátt fyrir alvarleika faraldursins hefur Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin metið alþjóðlega áhættu litla. Hættan er hins vegar talin mjög mikil í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó og mikil í nágrannaríkjum þess.