Réttarhöldum lauk í dag yfir hjúkrunarfræðingi í héraðsdómi í Jönköping í Svíþjóð en hjúkrunarfræðingurinn er ákærður fyrir að nauðga dauðvana konu á líknardeild.
Í fréttum sænska ríkissjónvarpsins SVT kemur fram að hjúkrunarfræðingurinn sé karlkyns og að kollegi hans hafi komið að honum við að brjóta á konunni en þetta var að kvöldi til í ágúst síðastliðnum. Konan lá banaleguna á líknardeild sjúkrahússins, Ryhov héraðssjúkrahúsinu.
Maðurinn flúði af vettvangi og keyrði í burtu en endaði utanvegar og keyrði á vegrið.
Réttarhöldin fóru fram fyrir luktum dyrum til að vernda friðhelgi konunnar en hún lést nokkrum klukkustundum eftir árásina en dánardómstjóri telur að veikindi hennar hafi dregið hana til dauða.
Saksóknari krefst sex ára fangelsisdóms yfir hjúkrunarfræðingnum og flokkar brotið sem sérstaklega alvarlega nauðgun í ljósi þess að hjúkrunarfræðingurinn nýtti sér í hversu viðkvæmri stöðu konan var í. Lágmarksdómur í Svíþjóð fyrir brot af þessu tagi er fimm ára fangelsi en hægt er að kveða upp harðari dóm ef málsatvik þykja réttlæta það og saksóknarinn í málinu segir það eiga við í þessu tilfelli.
Maðurinn hefur játað að hafa brotið á konunni en verjandi hans krafðist þess fyrir rétti að brotið yrði flokkað sem sérstaklega alvarlegt kynferðisbrot. Verjandi krafðist einnig vægari refsingar en saksóknarinn krafðist.
Hjúkrunarfræðingurinn var sömuleiðis ákærður fyrir umferðarlagabrot vegna flóttans frá spítalanum.
Dómur verður kveðinn upp eftir um 10 daga en hjúkrunarfræðingurinn verður í varðhaldi á meðan.