Pressan

Hakkarahópur lýsir yfir ábyrgð á risagagnaleka - Rúmlega 40 þúsund starfsmenn heimavarnaráðuneytisins berskjaldaðir

Mynd
Mynd: Getty

Upplýsingar um rúmlega 40 þúsund starfsmenn bandaríska heimavarnaráðuneytisins voru birtar á netinu í gær, en á bak við birtinguna er hópur hakkara sem braust inn í starfsmannakerfi ráðuneytisins og óhagnaðardrifin samtök sem nefnast Distributed denial of service (DDoSecrets), sem tóku við gögnunum og birtu.

Gögnin innihalda nöfn, símanúmer, netföng og starfsheiti starfsmanna hjá stofnunum ráðuneytisins á borð við innflytjenda- og tollaeftirlitið (ICE), landamæraeftirlitið (CBP) og stofnun sem fer með netöryggi og öryggi innviða (CISA). Þar má eins finna upplýsingar um nöfn flugumanna, staðsetningu vinnustöðva og fleira.

Friðarráðuneytið

DDoSecrets sögðust birta gögnin svo blaðamenn og almenningur gætu haft eftirlit með störfum stjórnvalda. Hópur hakkara sem kallar sig Friðarráðuneytið (e. Department of Peace) hefur lýst yfir ábyrgð á innbrotinu í kerfi ráðuneytisins, en hópurinn mun hafa nýtt sér veikleika í bandarísku auðkennisþjónustunni Okta sem hluti starfsmanna ráðuneytisins notar. Rétt er að geta þess að í gögnunum er ekki að finna alla starfsmenn ráðuneytisins eða ICE, en þeir nema hundruðum þúsunda. Lekinn nær einkum til þeirra starfsmanna sem nota Okta.

Ráðuneytið segist meðvitað um lekann í yfirlýsingu. Um öryggisbrest sé að ræða og ráðuneytið vinni nú ötullega að því að taka á málinu með skjótum og skilvirkum hætti. Öryggi starfsmanna er í forgangi en frekari upplýsinga er að vænta þegar ráðuneytið er komið með skýrari mynd af stöðunni.

Hakkarahópurinn sendi gögnin eins til Maiu Arson Crimew sem er orðið þekkt nafn í heimi hakkara í dag. Maia er svissneskur aðgerðarsinni, blaðamaður, hakkari og aktívisti sem er hvað helst þekkt fyrir að leka gögnum frá stórfyrirtækjum á borð við Intel og Nissan. Henni hefur tekist að gera allt vitlaust í Bandaríkjunum síðustu fimm árin og hafa yfirvöld þar freistað þess að fá hana framselda til að svara fyrir glæpi sína. Maia aðstoðaði DDoSecrets við að birta gögnin í gær. Hún hefur lýst því að aðgerðir hennar byggist fyrst og fremst á forvitni en líka baráttu gegn höfundarrétti, kapítalisma og auðveldi. Hefur hún lýst því sem svo að peningar geri fólk blint, en það geti hakkarar nýtt sér. Skoðanir hennar og aktívismi er mikið mótaður af fordómum sem hún hefur mætt í lífinu sem kynsegin og hinsegin einstaklingur.

Svissneskur aðgerðarsinni

Maia hefur gert gögnin sem birtust í gær leitanleg og nú eru margir farnir að fletta upp vinum og vandamönnum til að sjá hvort þeir séu leynilega að starfa fyrir ICE. Wired sem hefur greint gögnin segir að meirihluti þeirra varði landamæraeftirlitið, CBP, en stór hluti varði einnig ICE. Restin varði annars vegar ríkisborgara- og innflytjendaþjónustuna (USCIS) og innviðaöryggisstofnunina (CISA). Eins megi finna gögn sem varpa ljósi á hvernig starfsmenn ráðuneytisins starfa, hvaða boðleiðir þeir hafa, hverjir yfirmenn þeirra eru, hvaða hugbúnað þeir nýta við störf sín, áform um hleranir og annað.

Miðillinn ræddi við Alexander Lesie, sérfræðing í þjóðaröryggismálum hjá Recorded Future, sem varar við því að ef gögnin eru ósvikin geti aðilar sem hafa horn í síðu heimavarnaráðuneytisins borið kennsl á berskjaldaða starfsmenn, villt á sér heimildir sem embættismenn eða spillt rannsóknum.

Okta kannast ekki við öryggisgallann sem hakkararnir segjast hafa nýtt sér og hefur ekki tekið eftir neinni innrás í kerfi sín. Fyrirtækið þvertekur fyrir að hakkarar hafi nýtt sér þjónustu þess til að komast í starfsmannagögn ráðuneytisins.

DDoSecrets segja í yfirlýsingu að heimavarnaráðherra Bandaríkjanna, Markwayne Mullins, hafi heitið hertum aðgerðum. Hann hafi þar með kallað aðgerðir hakkaranna yfir sig. Haft er eftir Maiu að gögnin sem birtust muni gjörbreyta stöðu þeirra sem rannsaka aðgerðir ICE og heimavarnaráðuneytisins en nú geti blaðamenn og fleiri afmarkað upplýsingabeiðnir til yfirvalda með nákvæmum hætti. 

Hakkarahópurinn sagði um aðgerðir sínar: „Þau eru með okkar upplýsingar svo það er bara sanngjarnt að við séum með þeirra“