Hinn 59 ára gamli Neil Daniels, fyrrverandi lögreglumaður frá Oregon með 28 ára reynslu á bakinu, hefur stefnt yfirvöldum eftir að hann var handtekinn fyrir utan höfuðstöðvar sýslunnar í Coquille í október árið 2024. Daniels telur að með handtökunni hafi lögregla og sýslumannsfulltrúi brotið gegn stjórnarskrárvörðu tjáningarfrelsi hans, en Daniels var að mótmæla þegar hann var færður í járn og hafði öskrað: Trump er lúser!.
„Þeir beindu spjótum sínum að Daniels í krafti embættis síns, héldu honum, handtóku og kærðu bara til að hefta pólitíska tjáningu hans sem nýtur stjórnarskrárverndar,“ segir í stefnu málsins sem Law&Crime hefur undir höndum en þar segir einnig: „Að hrópa pólitísk slagorð er mótmælaform sem nýtur verndar“
Fyrrum lögreglumaðurinn segist hafa mótmælt með friðsömum hætti fyrir utan skrifstofu sýslunefndarmannsins Rod Taylors sem hafði viðurkennt opinberlega að hafa tekið þátt í áhlaupinu á bandaríska þinghúsið þann 6. janúar árið 2021. Daniels segist líta á áhlaupið sem landráð og hafi hann lýst vandlætingu sinni með því að halda á skilti fyrir utan skrifstofu Taylors sem á stóð: „TRUMP TAPAÐI LOL“ og samhliða því kyrjaði hann hitt og þetta, þar með talið: „Trump er lúser!“
Samkvæmt stefnunni mun Taylor hafa orðið æfur yfir þessu athæfi og sigað lögreglunni á Daniels. Þegar lögregla kom á vettvang útskýrði Daniel, sem gegndi á árum áður starfi herlögreglumanns í bandaríska hernum, að hann væri að nýta sér tjáningarfrelsi sitt til að mótmæla. Ætlaði Daniels svo að ganga af vettvangi en lögregla tilkynnti honum þá að hann væri handtekinn fyrir óspektir á almannafæri. Reyndi Daniels að útskýra að hann þekkti rétt sinn vel, hafandi starfað árum saman sem lögreglumaður. Hann hefði ekkert gert sem gæfi tilefni til handtöku og að réttur hans til mótmæla væri stjórnarskrárvarinn. Lögreglukonan sem handtók hann skeytti engu um mótmælin og færði hann í járnum í fangaklefa. Saksóknari taldi þó ekkert tilefni til að gefa út ákæru svo Daniels var síðar stefnt. Hann segir í stefnunni að atvikið hafi tekið verulega á hann og hann hafi aðeins treyst sér til að mótmæla einu sinni eftir að þetta gerðist. Hann fer fram á 9,4 milljónir í miskabætur.
Taylor hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna stefnunnar og segir ekkert hæft í því að hann hafi orðið æfur eða að hann hafi fyrirskipað handtökuna.